Kæra samferðafólk

Ég vona að þið hafið það sem allra best og séuð orðin æði spennt fyrir Indlandsævintýrinu.

Neðst í bréfinu eru tvær spurningar sem ég bið ykkur um að svara fljótlega (reply við þessum pósti).

Herbergin á Secret Garden (SG)

Sunesh, elskulegur aðalþjónn og tilvonandi trúnaðarvinur okkar allra (sjá myndband)  ætlar að hjálpa mér við niðurröðun í herbergin sem er töluverð gestaþraut því að óvenjumörg þekkja engan í hópnum.

Eftir að hafa fengið svör um óskir ykkar og þarfir leggjumst við Sunesh yfir verkefnið og komum um mánaðarmótin með tillögur að niðurröðun og verð hverrar lausnar.

Þið hafið eflaust skoðað herbergin á vefsíðu SG. Aðeins eitt, lítið einsmannsherbergi er í boði. Annars gildir það sama og á öðrum hótelum heims; sé einn í tveggja manna herbergi borgar hann verð tveggja manna herbergis. Ódýrasti kosturinn er því að deila herbergi með öðrum.

Að vera í herbergi með öðrum á SG er ekki eins og að kúldrast í kassalagaðri kompu með ókunnugri manneskju á hefðbundnu hóteli. Herbergin eru stór, sum risastór. Þau hafa ólíka lögun og himnasængurnar skapa tilfinningu fyrir sérsvefnherbergi. Auk þess dvelst fólk yfirleitt afar lítið innandyra. Við höfum nefnilega yfir að ráða heilu hóteli þar sem við þekkjum bæði gesti og starfsfólk. Heimurinn bíður utan herbergisins!

Komi í ljós að mörg vilji absólútt eiga sér sérherbergi leitum við til Solo Inn í þarnæsta húsi. SG yrði samt sem áður heimili okkar allra.

Hafi einhver áhuga á dýrari eða ódýrari gistingu má bóka á eigin vegum lúxushótel eða homestay í miðbæ Fort Kochi (10 mínútna gangur). SG verðum við samt sem áður að fylla.

Við Sunash veltum upp öllum möguleikum og finnum hugsanlega leyniherbergi í Leynilundinum. Skemmtilegast væri að við gistum öll þar.

Spurning 1

Í hvaða röð seturðu eftirfarandi valkosti? Hvað viltu helst og hvað kemur ekki til greina?
Hefurðu rætt við hugsanlegan herbergisfélaga? Væri þér sama að vera úthlutað herbergisfélaga?

  • Ein í litla, einsmannherberginu á SG
  • Ein í tveggja manna herbergi á SG (dýrara en eins manns)
  • Tveir í tveggja manna herbergi á SG (ódýrast)
  • Þrír í þriggja manna svítu á SG (ódýrast)
  • Frekar ein á Sóló en í með öðrum í herbergi á SG
  • Herbergi út í bæ

Í fyrri skiptin réðst herbergjaskipan á staðnum en nú vil ég ganga frá henni fyrirfram til að spara tíma á staðnum.

Spurning 2
Ég er vön að kalla til kynningarfundar hér heima til að hópurinn hafi hist áður en við byrjum að skrifa saman.

Hvaða vika í september hentar þér best?

  • Fyrsta vikan (1.-5. september)
  • Önnur vikan (6.-12. sept.)
  • Þriðja vikan (13.-19. sept)
  • Fjórða vikan (20.- 26. sept.)
  • Hvaða tími annar ef september hentar ekki

Efni sem má kynna sér

Ég er ekki vön að deila út námsefni fyrirfram en þar sem nýkomin er út bók með tveimur æfinganna sem ég mun leggja fyrir bendi ég  ykkur á æfingarnar mínar í bókinni Skrifað og lært.

Einnig gæti verið góður undirbúningur að hlusta á 5. þátt minn í Hljóðrás ævi minnar (2025):

Ég hef líka áður mælt með lestri bókarinnar Guð hins smáa eftir Arundhati Roy.

Allt er þetta upplagt til lesturs og hlustunar á löngum flugum.

Athugið

Þetta bréf er komið á upplýsingavef námskeiðsins þar sem finna má allar upplýsingar. Bendið mér gjarnan á upplýsingar sem mætti setja þar inn.

Hásumarkveðjur

Björg