Námskeiðslýsing
SKRIFAÐ MEÐ ÖLLUM SKILNINGARVITUM

Samskipti fara fram á íslensku en skrifa má á öðru tungumáli. Ferðafélagi er velkominn þótt hann hyggist ekki sitja námskeiðið.

Innihald

Við byrjum á léttum ritlistaræfingum til að skapa trúnaðartraust í hópnum.

Því næst horfum við inn á við í skrifum um ævi okkar og innri mann.

Að því loknu opnum við öll skilningarvit í leiðangrum um umhverfið; skrifum um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og viðbragða okkar við iðandi mannlífinu.

Þá skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum smásögu sem leiðir okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey). Leitast er við að nýta það sem við lærðum í fyrri skrifum en bæta afli ímyndunarinnar við.

Að lokum drögum við saman upplifunir okkar og bætum við staðreyndum, þekkingu og skoðunum í vandaðri ferðagrein eða -færslu.

Myndband frá fyrsta námskeiðinu  (’23)

Fyrirkomulag

Unnið er 4 klst. í senn 8 af þeim 15 morgnun sem dvalið er á Secret Garden auk upplestrarkvölda (38 klst. alls).

Hver fundur hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er þátttakendum skipt í minni hópa.

Skrifin eru líka lesin upp á kvöldvökum og  óhjákvæmilega rædd í dagsins önn. Sum kjósa að skrifa meira á meðan önnur njóta umhverfisins á annan hátt.

Sérstaklega er mælt með lestri bókar Arundhati Roy, Guð hins smáa, sem gerist í Kerala.

Sé áhugi fyrir hendi er rætt um hvernig nýta megi námsefnið í ólíkum störfum.

Jógatímar eru í boði á hótelinu áður en kennsla hefst á morgnana.

Sum stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið, sendu þínu fyrirspurn með þessari lýsingu.

Verð

Námskeið og utanumhald: 220.000 ISK (greitt Stílvopninu í áföngum)
Gisting: 80.000-150.000 ISK eftir vali (15 nætur m/morgunverði, greitt Secret Garden á staðnum).

Þátttakendur koma sér sjálfir á áfangastað en mörg hyggjast verða samferða frá Íslandi.

Nánari upplýsingar, áhugaskráning eða skráning

Skrifaðu eða hringdu í Björgu: bjorg@stilvopnid.is  / s. 899 6917.
Einnig má skrá sig á vefsíðu námskeiðsins

Umsagnir

,,Í hópnum skipti hvorki bakgrunnur né aldur máli. Dýrmæt þykja mér þau kynni og margt af því sem ég hef lært af Björgu og hópnum mun ég taka með mér og raða vandlega í verkfærakistu lífsins. Á námskeiðinu hef fengið að kynnast gagnlegum ráðum til að nálgast betur meitlun máls og hugsana. Reynsla og þekking Bjargar á viðfangsefninu er framúrskarandi og fagleg, byggð haldgóðri þekkingu frá henni og öðrum fræðimönnum á þessu sviði.“
Alda Árnadóttir verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgur

,, … og svo líka bara að hlusta á alla hina, að vera í hópi, það er svo magnað. Ég hef haft þessa hugmynd um að rithöfundurinn eigi að vera lokaður einn uppi í turni en í þessu umhverfi meikar það fullkominn sens að vera með öðrum í hópi, að hlusta á það sem hinir segja og bera skrif sín undir aðra.“
Steiney Skúladóttir spunaleikkona og sketsahöfundur

,,Mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Þegar ég segi að ferðin opni nýjar víddir hugsans meina ég að auðvitað er hugurinn þarna, síkvikur, en þú hjálpar mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri

Hópurinn haustið 2025 á Secret Garden með vinum.
Hóparnir haustið ’23 og ’25