Vonandi hafið þið öll komist klakklaust í gegnum stærstu áskorun ferðarinnar – umsóknina um vegabréfsáritun. Látið vita ef aðstoðar er þörf.
Ég vil skerpa á nokkrum atriðum sem hafa ber í huga við brottför:
Vegabréf og vegabréfsáritun
Munið að vegabréfið þarf að vera gilt í sex mánuði eftir heimkomu.
Prentið staðfestingu á e-Visa/ETA og hafið með í ferðagögnum og afrit í símanum.
Komueyðublað til Indlands
Ég held að slóðin að komueyðublaði sem ég deildi virki ekki lengur. Ég býst við að fá nýja senda og sendi hana áfam. Fylla þarf í eyðublaðið minnst 36 klst. fyrir komu.
Koma til Kochi
Við fljúgum flest með Air India frá Nýju Delhi til Kochi 29. október. Lendingartíminn hefur verið að breytast en er nú kl. 15:20. Flugnúmerið er AI 2458.
Kilroy sendir okkur uppfært ferðayfirlit viku fyrir brottför.
Lilja Petra, Ólöf, Bryndís, Rósa Marta og Þórey ferðast á eigin vegum.
Ferðir til og frá flugvöllum
Ég ákvað að þiggja rútu á vegum hótelsins til að við njótum saman okkar fyrstu viðkynningar af Indlandi. Hægt er að taka út rúpínur á flugvellinum í Dehli eða Kochi, ég set upphæðina inn þegar ég fæ hana.
Ég ákvað líka að biðja um léttan mat á hótelinu fyrsta kvöldið þar sem ég býst við að þreyttur hópurinn verði ekki til stórræðanna.
Það væri vel þegið ef einhvern skipulegði rútuferð á Keflavíkurflugvöll.
Munið svo að þið þurfið að panta ykkur flugvallarskutl og hótel í Delhí á bakaleiðinni. Sunesh hjálpar við það. Þóra kemur út en 5. nóvember.
Ostur og kavíar fyrir Secret Garden
Tvennt getum við gert til að gleðja Leynilundinn: Komið með eina túbu af kavíar eða eitt oststykki hvert. Þeim þykir gott að hafa saltan kavíarinn á morgunverðarborðinu og steyptur ostur fæst ekki á Indlandi. Fyrri hluti stafrófs gæti komið með kavíar – seinni hlutinn með ost (skipting á milli Kolbrúnar og Lilju Petru).
Heimilisfang Secret Garden
Secret Garden
2, Bishops Garden Lane No. 2
Pattalam, Fort Kochi
Kochi, Kerala 682001
India
Sími: +91 99475 14050
Gott er að hafa heimilisfangið og símanúmerið bæði í símanum og á blaði í handfarangri.
Greiðsla fyrir gistingu og gengi
Ég fæ sendan lista frá Secret Garden með nákvæmri upphæð hvers og eins í USD, að frádregnu staðfestingargjaldi, svo allir geti haft rétta upphæð meðferðis.
Gengið er okkur hagstætt um þessar mundir: krónan er sterk og indverska rúpían veik. Ég mæli með að hafa USD í reiðufé fyrir gistingu og stærri greiðslur en nota kort þar sem það hentar fyrir dagleg útgjöld.
Ef kortavél eða hraðbanki býður val á milli ISK og INR, veljið alltaf INR. Hraðbankaúttektir geta verið dýrar vegna gjalda, svo best er að nota þær sparlega. Hafið alltaf eitthvað reiðufé meðferðis og treystið ekki eingöngu á kort í símanum.
Ferðatryggingar
Athugið tímanlega að þið séuð með gilda ferðatryggingu og vitið hvað hún nær yfir. Gott er að hafa trygginganúmer og símanúmer neyðarþjónustu tryggingafélagsins aðgengilegt í símanum.
Síminn
Athugið að rafræn skilríki séu ekki að renna út. Gott er að:
- hlaða niður offline-korti af Kochi,
- hafa afrit af vegabréfi, vegabréfsáritun, tryggingum og öðrum mikilvægum gögnum í símanum,
- vera með WhatsApp, sem er mikið notað á Indlandi,
- slökkva á Data Roaming á íslenska kortinu nema þið vitið nákvæmlega hvað notkunin kostar.
Ég hef beðið um að símkortasölumaður komi á Secret Garden.
Heilsa og bólusetningar
Ef einhver á enn eftir að huga að bólusetningum er tími til þess núna. Ekki þarf almennt að sýna bólusetningarskírteini við komu til Indlands þegar komið er frá Íslandi/Evrópu.
Takið með þau lyf sem þið notið reglulega og gjarnan nóg fyrir alla ferðina. Gott er að hafa nauðsynleg lyf í handfarangri.
Secret Garden getur kallað til lækni ef þörf krefur.
Jóga
Jóga verður í boði á Secret Garden. Hugmyndin er að hafa opinn tíma fyrsta morguninn fyrir þau sem vilja og sjá síðan hversu margir hafa áhuga á að halda áfram. Ef áhugi er fyrir jóga verður hægt að skipuleggja tímana fyrirfram þannig að kennarar fari ekki margar fýluferðir. Ég man ekki verðið á jógatímunum en það er ekki hátt.
Facebook-hópurinn
Notum lokaða Facebook-hópinn áfram fyrir spurningar, hugmyndir og upplýsingar sem gagnast öllum.
Nú eru aðeins þrjár vikur í brottför – og þetta er farið að verða býsna raunverulegt!
