Ritbúðir í Kochi í nóvember
Tólf til fjórtán manna ritlistarhópur ætlar að dvelja á hótelinu Secret Garden í borginni Kochi í Keralahéraði Indlands 15. – 30. nóvember 2023.
Markmið ferðarinnar er að skrifa nokkra tíma á dag um það sem fyrir augu og eyru ber í framandi umhverfinu.
Leiðbeinandi er Björg Árnadóttir, rithöfundur og ritlistarkennari.
Hópurinn hefur haldið saman síðan árið 2019 þegar fyrstu drög voru lögð að ferð sem þrisvar þurfti að hætta við vegna kóvíd. Ferðin er fullmönnuð en sæti kunna að losna. Skráðu þig á biðlista hér að ofan (blár hnappur).
Ferðin er ekki skipulögð af fagaðilum heldur í samstarfi ferðafélaganna. Að dvöl í Kochi lokinni hyggur hópurinn á frekari ferðalög um þessar slóðir, öll saman eða hvert fyrir sig. Endanlegt verð liggur í apríl 2023.
Frekari upplýsingar: bjorg@stilvopnid.is /s. 899 6917.