ADD ANYTHING HERE OR JUST REMOVE IT…
  • Heim
  • Námskeiðin
    • Skoðið úrval námskeiða
    • Endurgreiðsluskilmálar
    • Aðgengi, aðstoðarfólk og túlkar
  • Ráðgjöf
  • Umsagnir
  • Um Björgu
  • Blogg
  • Stílvopnið
    • Samstarf
    • Evrópuverkefni
    • Hafa samband
0 items / 0 kr.
Menu
STÍLVOPNIÐ - valdefling og sköpun ehf.
0 items / 0 kr.
Heim Helgarnámskeið Hetjuferðin á Egilsstöðum í apríl

Hetjuferðin á Egilsstöðum í apríl

59.900 kr.

  • Hvar: Egilsstaðaskóli, Tjarnarlandi 11, Egilsstöðum
  • Hvenær: Helgina 13. – 16. apríl 2023 (16 klst.). Nánari upplýsingar að neðan.
  • Kennari: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari, rithöfundur og MA í kennslufræðum skapandi greina.
  • Verð: 59.900 kr. Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.

Smelltu hér til að sjá kynningarmyndband.

Skráning og greiðslur

Skráning: Blár hnappur að neðan.

Berist ekki skráningarstaðfesting/reikningur: Athugið hvort rétt netfang var gefið upp/skoðið ruslpóstinn. Vandamál við skráningu/greiðslu: bjorg@stilvopnid.is

Greiðið 59.900 kr. á reikning Stílvopnsin: 0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti á síðu Valitor. Sætið er frátekið en ekki tryggt fyrr en greitt hefur verið.

Endurgreiðsluskilmálar.

 

Deila með:
  • Nánari lýsing
Nánari lýsing

Hvað er Hetjuferðin?

Ævafornt minni Hetjuferðarinnar hefur fylgt mannkyni allt frá því að við fórum að segja sögur og átta okkur á umbreytingarmætti sagnalistarinnar. Hetjuferðin er þekkt bókmenntahugtak sem í síauknum mæli er einnig notað til sjálfskoðunar:

Hetjan í sínu þekkta umhverfi heyrir kall til breytinga. Til að hlýða kalli sínu þarf hetjan að yfirstíga innri og ytri hindranir. Hún stígur inn í óþekktan heim ævintýrisins þar sem ögrandi þroskaverkefni bíða, hlýtur eldskírn og öðlast gjöf í ferli friðþægingar og sátta. Umbreytt snýr hetjan aftur til síns heima með gjöf sem gagnast samfélagi hennar öllu.

Hetjan er ekki ofurhetja heldur sú sem er tilbúin að mæta áskorunum lífsins, jafnvel þótt óttaslegin sé.

Innihald námskeiðs

Í upphafi vita þátttakendur sjaldnast hvert þeir stefna en eru von bráðar lagðir af stað í hetjuferð, ýmist með því að skrifa um skáldaðan veruleika eða eigið líf. Ólíkur bakgrunnur, nálgun, efnistök og áhugi hvers og eins dýpka umfjöllunarefni námskeiðsins.

Hugmyndum goðsagnafræðingsins Joseph Campbell, handritshöfundarins Chris Vogler og leikhússmannsins Paul Rebillot er fléttað saman við þekkingu og kennslureynslu leiðbeinandans.

  • Hlaðvarpsviðtal um Hetjuferðina.

Fyrirkomulag námskeiðs

Fim. 13. apríl kl. 18:00-22:00: HETJAN
Kynning á hugmyndafræði Hetjuferðarinnar. Upphitun með aðferðum sem hrista hópinn saman og hjálpa þátttakendum að setja sig í spor hetjunnar. Skrifað og skrafað um hetjuna frá ólíkum sjónarhólum.

Fös. 14. apríl kl. 18:00-22:00: HETJAN OG HINDRANIRNAR
Hetjan horfist í augu við hindranir sínar áður en hún stígur inn í heim hins óþekkta.

Lau. 15. apríl kl. 10:00-14:00: HETJAN OG HEIMUR HINS ÓÞEKKTA
Skrifað um þroskaverkefni hetjunnar í hinum óþekkta heimi ævintýrisins.

Sun. 16. apríl kl. 10:00-14:00: HETJAN, HEIMFERÐIN OG GJÖFIN
Áfram er skrifað um hinn óþekkta heim þar sem hetjan, í ferli friðþægingar og sátta, öðlast gjöf sem hún snýr með aftur til síns heima.

Ekki eru lögð fyrir heimaverkefni en þátttakendum er að sjálfsögðu frjálst að skrifa að vild á milli skipta.

Aðalheiður Sigursveinsdóttir (Hetjuferðin haustið 2022)
,,Hetjuferðin er einstaklega skemmtilegt námskeið þar sem ríkir hvetjandi andrúmsloft og nægt pláss er fyrir alls konar fólk á öllum aldri, bæði byrjendur í skrifum og lengra komna. Ég kom til að glugga í hugmyndafræði sem var ný fyrir mér en fékk að auki lykla að alls konar ævintýrum. Það blundar eitthvað undir niðri, ekkert áþreifanlegt heldur órætt, sem skýtur upp kollinum af og til, fyrirvaralaust eins og forvitin moldvarpa að skoða heiminn. Ævintýraþráin espaði okkur upp á námskeiðinu, eitthvað óvænt var alltaf um það bil að fara að gerast. Hvert úr sinni áttinni hófum við þetta ferðalag, stigum út úr hversdeginum og inn í óvissuna. Héldum hópinn með leikandi undirtónum leiðangursstjórans. Fetuðum okkur áfram, hvert með sitt göngulag og skimuðum eftir vísbendingum. Forvitnileg ferðaáætlunin heillaði þótt ekkert okkar vissi nákvæmlega hvert ferðinni væri heitið. Við fengum nýjar áskoranir í hæfilegum skömmtum og þannig lækkaði efasemdabrekkan smátt og smátt. Taumhaldið var fumlaust og fræðandi. Þessi ferð var engri lík, vísbendingarnar eftirminnilegar, en gullið tókum við með okkur heim.”

Frekari upplýsingar um námskeiðið: bjorg@stilvopnid.is / s. 899 6917.

Tengdar vörur

Sköpunarsmiðja í Reykjavík í október

Helgarnámskeið
49.900 kr.
  • Hvar: Svövuhúsi, landi Tungufells, 161 Reykjavík (dreifbýli)
  • Hvenær: Helgin 13.-15. október 2023 (12 klst.) Sjá nánar að neðan.
  • Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistar- og myndlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina.
  • Verð: 49.900. Athugaðu hvort stéttarfélagið styrkir þig.

Skráning og greiðslur

Skráning: Blái hnappurinn. Berist staðfesting/reikningur ekki: Athugið hvort gefið hefur verið upp rétt netfang/skoðið ruslpóstinn. Vandamál við skráningu/greiðslur: bjorg@stilvopnid.is Greiðið 49.900 kr. á reikning Stílvopnsins:0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti á síðu Valitor. Sætið er ekki tryggt fyrr en greitt hefur verið. Endurgreiðsluskilmálar
Skrá á námskeið

Skapandi skrif í Reykjavík í september

Helgarnámskeið
49.900 kr.
  • Hvar: ReykjavíkurAkademíunni, Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík
  • Hvenær: 22. - 23. september 2023 (12 klst.)
  • Kennari: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari, rithöfundur og MA í menntunarfræðum skapandi greina.
  • Verð: 49.900. Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.

Skráning og greiðslur

Skráning: Blái takkinn. Berist staðfesting/reikningur ekki: Athugið hvort rétt netfang var gefið upp/skoðið ruslpóstinn. Vandamál með skráningu/greiðslu: bjorg@stilvopnid.is Greiðið 49.900 kr. á reikning Stílvopnsins: 0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti á síðu Valitor. Sætið er ekki tryggt fyrr en greitt hefur verið. Endurgreiðsluskilmálar.
Skrá á námskeið

Skapandi skrif á Dalvík í maí

Helgarnámskeið
49.900 kr.
  • Hvar: Menningarhúsið Berg, Dalvíkurbyggð
  • Hvenær: Helgin 19. - 21. maí (12 klst.). Nánari upplýsingar að neðan.
  • Kennari: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari, rithöfundur og MA í menntunarfræðum skapandi greina.
  • Verð: 49.900. Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.

Skráning og greiðslur

Skráning: Blái takkinn. Berist staðfesting/reikningur ekki: Athugið hvort rétt netfang var gefið upp/skoðið ruslpóstinn. Vandamál með skráningu/greiðslu: bjorg@stilvopnid.is Greiðið 49.900 kr. á reikning Stílvopnsins: 0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti á síðu Valitor. Sætið er frátekið en ekki tryggt fyrr en greitt hefur verið. Endurgreiðsluskilmálar.  
Skrá á námskeið

Sköpunarsmiðja í Vökulandi í apríl

Helgarnámskeið
49.900 kr.
Hvar: Vökuland vellíðunarsetur, Vökulandi, 605 Akureyri (dreifbýli). Hvenær: Helgin 21.-23. apríl 2023 (12 klst.) Sjá nánar að neðan. Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistar- og myndlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina.. Verð: 49.900. Athugaðu hvort stéttarfélagið styrkir þig.

Skráning og greiðslur

Skráning: Blái hnappurinn. Berist staðfesting/reikningur ekki: Athugið hvort gefið hefur verið upp rétt netfang/skoðið ruslpóstinn. Vandamál við skráningu/greiðslur: bjorg@stilvopnid.is Greiðið 49.900 kr. á reikning Stílvopnsins: 0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti á síðu Valitor. Sætið er frátekið en ekki tryggt fyrr en greitt hefur verið. Endurgreiðsluskilmálar
Skrá á námskeið

STÍLVOPNIÐ
VALDEFLING OG SKÖPUN EHF.

ReykjavíkurAkademíunni
Þórunnartúni 2
105 Reykjavík
Kennitala: 580815-1380
Reikningsnúmer: 0133-26-580815

HAFÐU SAMBAND

GSM: +354 899 6917
bjorg@stilvopnid.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN

Facebook

FLÝTILEIÐIR

Endurgreiðsluskilmálar

Höfundaréttur © 2023 Stílvopnið

Greiðsluleiðir

mastercard2
4-1
3-1
2-1

Hönnun: Veftorg

Loka
  • Heim
  • Námskeiðin
    • Skoðið úrval námskeiða
    • Endurgreiðsluskilmálar
    • Aðgengi, aðstoðarfólk og túlkar
  • Ráðgjöf
  • Umsagnir
  • Um Björgu
  • Blogg
  • Stílvopnið
    • Samstarf
    • Evrópuverkefni
    • Hafa samband
Karfa
loka
Skrifaðu inn leitarorð til að sjá niðurstöðurnar.