Skapandi skrif 7.-9. feb. 2025

54.900 kr.

  • Hvar: Sjávarklasanum, Grandagarði 16, 101 Reykjavík. Aðgengi
  • Hvenær: Helgarnámskeið 7.-9. feb. (12 klst.)
  • Kennari: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari, rithöfundur og MA í menntunarfræðum skapandi greina
  • Verð: 54.900. Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.

Skráning og greiðslur

Berist staðfesting/reikningur ekki: Athugið ruslpóst eða hafið samband.

Greiðið  á reikning Stílvopnsins (0133-26-580815 / kt. 580815-1380) eða með greiðslukorti.Ekki þarf að greiða við skráningu en tryggðu þér sætið með greiðslu.

Endurgreiðsluskilmálar.

Nánari upplýsingar og skráning:bjorg@stilvopnid.is, s. 899 6917

Björg Árnadóttir hlaut alþjóðlega viðurkenningu Global WIIN 2024 fyrir Stílvopnið.

Nánari lýsing

Um námskeiðið

Hópurinn er leiddur með æfingum í gegnum helstu þætti sagnaritunar. Mikil vinnusemi ríkir á þessu hnitmiðaða helgarnámskeiði og í lokin hafa þátttakendur skrifað drög að eða fullgerða sögu.

Hver koma?

Námskeiðið sækir fólk á öllum aldri og það hentar jafnt byrjendum sem útgefnum höfundum enda lærum við öll af skapandi samskiptum. Það hentar líka þeim sem vilja læra að njóta lesturs betur.

Fyrirkomulag námskeiðs

Fös. 7. feb. kl. 18:00-22:00: UPPHITUN OG KVEIKJUR

Hrist upp í hópnum og heilasellunum og hópurinn hnoðaður saman með stuttum ritlistaræfingum. Rætt um ritunarferlið og æfingar skrifaðar til að auka flæðið og koma þátttakendum af stað með eigin sögu.

Lau. 8. feb. kl. 10:00-14:00: PERSÓNUR

Þátttakendur finna í sameiningu flöt á ákveðnu umfjöllunarefni og skrifa um það frá sjónarhóli mismunandi sögupersóna. Rætt um hlutverk persóna í bókmenntum og persónusköpun æfð. Skrifað og skrafað um skáldaðar persónur sem birtast á blaðsíðum bóka.

Sun.  9. feb. kl. 10:00-14:00: UPPBYGGING OG FORM

Fjallað um og unnið með uppbyggingu og form, framvindu og spennu. Rætt um skrif hvers og eins í hópnum enda er höfundum hollt að skoða eigin verk og annarra.

Ummæli

Vigdís Hafliða (Skapandi skrif 2019)
Námskeiðið hjá Björgu í skapandi skrifum er besta ritlistarnámskeið sem ég hef farið á. Ég fór áður en ég var byrjuð að skrifa af einhverri alvöru og æfingarnar og leiðsögnin náðu að draga fram hliðar sem ég vissi ekki að ég hefði og juku sjálfstraust mitt til muna. Ég mæli hiklaust með námskeiðinu, sérstaklega fyrir fólk sem þarf tól til að koma sér áfram.

Bergrún Íris Sævarsdóttir (Skapandi skrif 2016)
Námskeiðið kom mér mjög skemmtilega á óvart og gaf mér heilmörg ný tæki til að beisla hugmyndirnar mínar og ydda stílvopnið . Kærar þakkir fyrir áhugaverða kennslu og einlæga og skemmtilega nálgun.

Nánari upplýsingar um námskeiðið: bjorg@stilvopnid.is, s. 899 6917