Innihald námskeiðs
Hópurinn er leiddur með æfingum í gegnum helstu þætti sagnaritunar. Mikil vinnsemi ríkir á þessu hnitmiðaða helgarnámskeiði og í lokin hafa þátttakendur skrifað drög að sögu. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem útgefnum höfundum enda getum við öll lært af skapandi samskiptum við aðra. Það hentar líka þeim sem einkum vilja læra að njóta lesturs betur.
Fyrirkomulag námskeiðs
Fös. 20. jan. kl. 18:00-22:00: UPPHITUN OG KVEIKJUR
Hrist upp í hópnum og heilasellunum og hann hristur saman með stuttum ritlistaræfingum. Rætt um ritunarferlið og æfingar gerðar til að auka flæðið. Kveikjur koma hverjum og einum af stað við skrif eigin sögu.
Lau. 21. jan. kl. 10:00-14:00: PERSÓNUR
Þátttakendur finna í sameiningu flöt á ákveðnu umfjöllunarefni og skrifa um það frá sjónarhóli mismunandi sögupersóna. Rætt um hlutverk persóna í bókmenntum og persónusköpun æfð. Skrifað og skrafað um skáldaðar persónur sem birtast á blaðsíðum bóka.
Sun. 22. jan. kl. 10:00-14:30: UPPBYGGING OG FORM
Fjallað um og unnið með uppbyggingu og form, framvindu og spennu. Rætt um skrif hvers og eins í hópnum enda er höfundum hollt að skoða eigin verk og annarra.
Bergrún Íris Sævarsdóttir (Skapandi skrif 2016)
„Námskeiðið kom mér mjög skemmtilega á óvart og gaf mér heilmörg ný tæki til að beisla hugmyndirnar mínar og ydda stílvopnið . Kærar þakkir fyrir áhugaverða kennslu og einlæga og skemmtilega nálgun.”