Hetjuferðin – ritsmiðja og gönguferð í Hlöðuvík á Hornströndum 16. til 20. ágúst

kr.

Fiðrildaferðir og Stílvopnið bjóða upp á einstakt ferðalag og námskeið í Hlöðuvík á Hornströndum sumarið 2026.

Skráning og allar upplýsingar um verð og fyrirkomulag eru að finna HÉR.

Upplýsingar um námskeiðið eru hér að neðan.

 

Nánari lýsing

,,Við teljum að á námskeiðinu um Hetjuferðina lyftist himininn og heimurinn stækki. Viska Bjargar og hlýja fylgir okkur áfram um óþekktan heim sköpunarinnar!“ skrifaði síðasti Hetjuferðarhópur. Og víst er viðeigandi að himininn lyftist og heimurinn stækki í Hlöðuvík.

Hetjuferðin (The Hero’s Journey)

Hetjuferðin er ævaforn frásagnaraðferð, þrungin andlegri visku og sálfræðilegri dýpt. Í Hlöðuvík skoðum við áskoranir hetjunnar og skrifum sögur sem dýpka skilning okkar á andlegu ferðalagi hetjunnar sem og höfundarins.

Efni ritsmiðjunnar

Hetjuferðin er þroskaferðalag. Ferðin hefst í hinum þekkta heimi hversdagsins þar sem hetjan heyrir innra eða ytra kall til breytinga og þráin eftir einhverju dýpra vaknar. Hetjan stígur inn í heim ævintýrisins þar sem hún mætir ótal hindrunum en eflist við hverja raun og öðlast nýja sýn á sjálfa sig og lífið. Þegar hún snýr umbreytt tilbaka til síns þekkta heims hefur hún öðlast gjöf sem gagnast ekki aðeins henni sjálfri heldur samfélagi hennar öllu.

Þú þekkir þennan þroskarhring úr trúartextum, ævintýrum, fantasíum og kvikmyndum og bókmenntum nútímans en ekki síður úr lífssögum fólks, þinni eigin og annarra. Í Hlöðuvík horfumst við í augu við hindranir okkar, stígum inn í ævintýrið og öðlumst gjöf aukins þroska. Reynslan er í senn ögrandi og ákaflega skemmtileg.

Leiðsögumaður í Hetjuferðinni er Björg Árnadóttir, ritlistarkennari og eigandi Stílvopnsins.

Björg hefur tvisvar farið í gegnum sjö daga Hetjuferðarþjálfun sem leikhússmaðurinn Paul Rebillot skapaði: The Hero’s Journey: A Rite of Passage. Á námskeiðinu fléttar hún þeirri reynslu saman við fjörutíu ára reynslu sína sem ritlistarkennari og hugmyndir og aðferðir goðsagnafræðingsins Joseph Campbell, geðlæknisins Carl Jung, handritshöfundarins Christopher Vogler, rithöfundarins Juliu Cameron auk Sporanna 12. Enga þessara aðferða þarf að þekkja fyrirfram.

Fyrirkomulag smiðjunnar (16 klst.)

Námsefni (fyrirlestur og texti um Hetjuferðina) er sent þátttakendum fyrir ferðina. Hetjuferðið hefst með hugarfóðri um leið og lagt verður úr höfn á Ísafirði og eitt og annað menningarlegt verður á dagskrá í útivist og göngum.

Á námskeiðinu er unnið með félagsörvun og ritlistaræfingar í fimm klukkustundir tvo daga og sex klukkustundir þann þriðja (15.-18. ágúst), utan- eða innandyra eftir veðri. Hluti þessara  kennslustunda er í formi frásagnar- og upplestrarstunda á kvöldvökum.

Í tímaleysi Hlöðuvíkur er svo hægt að halda áfram að íhuga skrif sín í samtali við eigið sjálf, félagana og náttúruna.

17. ágúst: Hugmyndafræði hetjuferðinnar kynnt. Hver og einn skapar hetjuna sína og hennar þekkta heim þar sem hún heyrir kall til ævintýris (breytinga).
18. ágúst: Hetjan hlýðir kallinu og horfist í augu við hindranir sínar áður en hún stígur inn í hinn óþekkta heim þar sem henni mæta þroskaverkefni lífsins.
19. ágúst: Í ferli fyrirgefningar og sátta öðlast hetjan gjölf sem hún snýr umbreytt með aftur til síns heima, gjöf sem gagnast samfélagi hennar öllu.

Lýsing á hetjuferðinni kann að hljóma hátíðlega enda er hér um að ræða þekkt bata- og sorgarferli.  Smiðjurnar verða hins vegar eins fjögugar og skemmtilegar og þátttakendur gera þær en ýmist er skrifað um skáldaðar persónur eða eigin hetjuferðir.

Umsagnir

Það er magnað að sjá hvernig Björg leiðir okkur áfram í hæfilega stórum skrefum til að við fáum að uppgötva sjálf þessa leyndardóma og sjá að við getum svo miklu meira en við höldum.
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, Hetjuferðin, 2021

Námskeiðið var mér styrking, gleði, gjöf og gæfa.
Ragna Þóra Karlsdóttir, Sköpunarsmiðja um Hetjuferðina, 2021

Við erum ekki söm. Það urðu ákveðnir töfrar. Kennslan leiðir okkur svo víða, dyrnar opnaðar á listilegan hátt og húmor varðar leiðina.
Hópurinn í mars 2024

Frábært námskeið! Hetjuferðalagið færir manni hjálplegan og kærkominn ramma utan um lausbeislaðar og tilviljanakenndar hugmyndir.
Hildur Helgadóttir, Hetjuferðin, 2018

Ég kom til að glugga í hugmyndafræði, sem var ný fyrir mér, en fékk að auki lykla að alls konar ævintýrum.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir, Hetjuferðin 2022

Björg útskýrir Hetjuferðina