Skrifað með öllum skilningarvitum á Indlandi 29. okt. -13. nóv. Skráning á biðlista
220.000 kr.
Vertu eins og heima hjá þér í Kochi, Kerala!
Kerala, suðvestasta ríki Indlands, er kallað Guðs eigið land. Og Leynilundurinn, Secret Garden hótelið í Kochi, er sannarlega næsti bær við himnaríki.
Hér er ljúft að dvelja við sköpun og skrif og margvíslega aðra heilandi og heillandi iðju.
Ég heiti Björg Árnadóttir og hef kennt ritlist í rúmlega fjörutíu ár. Ritbúðirnar í haust verða þær þriðju sem ég held í Leynilundinum hennar Þóru Bergnýar.
Skoðið námskeiðslýsinguna að neðan – og takið eftir að námskeiðið er fyrir alla, jafnt byrjendur sem lengra komna.
,,…þú hjálpaðir mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna…“
Um Björgu
Hvers vegna er hæglætisferð til Kerala góð hugmynd?
Secret Garden Hotel
Hvað kosta herlegheitin?
Námskeið (36 klst.) og utanumhald:
220.000 kr. (greiðist Stílvopninu í áföngum)
Gisting 15 nætur með morgunmat
80.000-150.000 kr. (greiðist Secret Garden við komu)
Flug
Þátttakendur koma sér sjálfir á áfangastað. Átta manna hópur hefur pantað Finnair-flug beint frá Evrópu til Indlands (hægt er að bætast í hópinn) en önnur ætla með Eremites í gegnum furstadæmin. Enn önnur koma annars staðar að.
Á Indlandi er ákaflega ódýrt að dveljast.
Ferðafélagar sem ekki ætla að sitja námskeiðið eru velkomnir en gætu þurft að gista annars staðar.
Nánari upplýsingar: bjorg@stilvopnid.is / s. 899 6917.
Hægt er að skrá sig á biðlista fyrir námskeiðið 2026 og skrá áhuga á námskeiðinu 2027. Hvorugt er bindandi.

Úr kennslustund haustið 2023
Námskeiðslýsing (36 klst.)
Innihald
Við byrjum á léttum ritlistaræfingum til að skapa trúnaðartraust í hópnum.
Því næst horfum við inn á við í skrifum um ævi okkar og innri mann.
Að því loknu opnum við öll skilningarvit í leiðangrum um umhverfið; skrifum um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og viðbragða okkar við iðandi mannlífinu.
Þá skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum smásögu sem leiðir okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey). Leitast er við að nýta það sem við lærðum í fyrri skrifum en bæta afli ímyndunarinnar við.
Að lokum drögum við saman upplifanir okkar og bætum við staðreyndum, þekkingu og skoðunum í vandaðri ferðagrein eða -færslu.
Myndband frá fyrsta námskeiðinu (’23)
Fyrirkomulag
Unnið er 4 klst. í senn 8 af þeim 15 morgnun sem dvalið er á Secret Garden. Upplestrarkvöldvökur verða eftir þörfum (36 klst. alls).
Hver fundur hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er þátttakendum skipt í minni hópa. Skrifin eru líka óhjákvæmilega rædd í dagsins önn.
Sum kjósa að skrifa meira á meðan önnur njóta umhverfisins á annan hátt.
Sérstaklega er mælt með lestri bókar Arundhati Roy, Guð hins smáa, sem gerist í Kerala.
Sé áhugi fyrir hendi eru skipulagðar umræður um hvernig nýta megi námsefnið í ólíkum störfum þátttakenda.
Sum stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið, sendu þínu fyrirspurn með þessari lýsingu.
Umsagnir
,,Í hópnum skipti hvorki bakgrunnur né aldur máli. Dýrmæt þykja mér þau kynni og margt af því sem ég hef lært af Björgu og hópnum mun ég taka með mér og raða vandlega í verkfærakistu lífsins. Á námskeiðinu hef fengið að kynnast gagnlegum ráðum til að nálgast betur meitlun máls og hugsana. Reynsla og þekking Bjargar á viðfangsefninu er framúrskarandi og fagleg, byggð haldgóðri þekkingu frá henni og öðrum fræðimönnum á þessu sviði.“
Alda Árnadóttir verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgur
,, … og svo líka bara að hlusta á alla hina, að vera í hópi, það er svo magnað. Ég hef haft þessa hugmynd um að rithöfundurinn eigi að vera lokaður einn uppi í turni en í þessu umhverfi meikar það fullkominn sens að vera með öðrum í hópi, að hlusta á það sem hinir segja og bera skrif sín undir aðra.“
Steiney Skúladóttir spunaleikkona og sketsahöfundur
,,Mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Þegar ég segi að ferðin opni nýjar víddir hugsans meina ég að auðvitað er hugurinn þarna, síkvikur, en þú hjálpar mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri
Myndir frá námskeiðunum ’23 og ’25


