Ókeypis rafbók um ritlist og ritlistarkennslu

kr.

Rafbókin SKRIFAÐ OG LÆRT er komin út á íslensku, norsku og færeysku. Hún hentar öllu skrifandi fólki en ekki síst þeim sem kenna ritlist.

Gjörið svo vel að nota og njóta!
https://www.forfatterskolen.no/skriv

Nánari lýsing

Skriv og lær er Nordplus Voksen-verkefni sex vestnorrænna rithöfunda og ritlistarkennara (2024-2026).

Fyrir hönd ReykjavíkurAkademíunnar tóku þátt þær Björg Árnadóttir (Stílvopnið) og Oddný Eir Ævarsdóttir (forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri). Kristine Henningsen og Torhild Slåtto voru fulltrúar norska Forfatterskolen og Eyð Berghamar Steinbjørnsdóttir og Helena Kannuberg tóku þátt fyrir hönd Fróðskaparseturs Færeyja.

Vestnorrænt samstarf er afar nærandi. Við lærðum mikið hver af annarri og af nemendunum sem við fengum að kynnast og kenna í löndunum þremur – og skemmtum okkur konunglega við samanburð á málum okkar og menningu.