HÆGLÆTISFERÐ TIL KOCHI ER GÓÐ HUGMYND
Kerala fylki
Kochi-borg er í Kerala-fylki liggur við Malabarströnd suðvesturhluta Indlands. Fylkið er lítið, þéttbýlt og afar frjósamt. Uppi í fjöllunum er gróskumiklir regnskógar en meðfram ströndinni þéttriðið net lóna og skurða sem kölluð eru The Backwaters og eru í senn samgönguleiðir og vinsælir ferðamannastaðir. Sólarhrings sigling á þessum slóðum með eigin skipstjóra, kokki og þjóni er besta slökun sem ég hef upplifað um ævina.
Menntunarstig er hátt í Kerala og enskukunnátta útbreidd sem auðveldar okkur ferðalagið. Og að sjálfsögðu eiga hin þekktu, indversku ayurveda-læknavísindin þarna uppruna sinn þannig að auðvelt er að fá bót hvers kyns meina með jurtum, heilandi mataræði og olíulöðrandi líkamsmeðferðum. Kynni mín af indverskum lifnaðarháttum í þremur ferðum hafa haft afgerandi áhrif á heilsufar mitt og ég get ekki beðið þeirrar fjórðu haustið 2026!
Í Kerala skiptir fólk sér ekki af því á hvað nágranninn trúir og kirkjur, moskur og hof standa gjarnan hlið við hlið. Vegna alls sem Kerala hefur að bjóða er fylkið oft kallað Guðs eigið land. Sjálf vil ég kalla Kerala Indland fyrir byrjendur þar sem ég hef ekkert upplifað sem truflar tilfinningalíf mitt. Indland og Indland getur nefnilega verið tvennt ólíkt.
Kochi-borg
Borgin Kochi, drottning Arabíuhafs, hefur frá fornu fari verið miðstöð kryddviðskipta á vesturströnd Indlands. Á síðari árum hefur rík menningararfleifðin gert borgina á vinsælum áfangastað innlendra og erlendra ferðamanna. Þar er til dæmis haldinn þekktur Biennal sem freistar listunnenda hvaðanæva að.
Áhrifa portúgalskrar, hollenskrar og breskrar nýlendustefnu gætir í byggingarlistinni en Vasco da Gama lést einmitt í Kochi árið 1524. Tákn borgarinnar er hins vegar Kínversku fiskinetin frá 14. öld. Kochi hefur nýlega verið valin 6. besti ferðamannastaður Indlands (Outlook Traveller, 2025), sjöunda besta borg heims að heimsækja (Lonely Planet, 2020) og einn besti áfangastaður í Asíu (Condé Nast Travaller, 2024).
Ólík nöfn borgarinnar geta valdið ruglingi; Kochi, Cochin, Fort Kochi og Ernakulam. Secret Garden hótelið er í Fort Kochi, friðsælli og öruggri byggð á indverskan mælikvarða. Um tíu mínútna gangur er frá hótelinu til Princess Street í hverfi verslunar, veitingahúsa og þjónustu. Halda má áfram gangandi, hjólandi eða með rickshaw (tuk tuk) áfram til Jew Town, sögufrægs hverfis þúsunda ára byggðar Cochin-gyðinganna. Paradesi-sýnagógan, elsta sýnagóga breska heimsveldisins, er samt orðin að safni þar sem byggð gyðinga hefur lagst af í Kochi. Allt í kringum sýnagógusafnið liggja þröngar götur fullar antíkbúðum, kryddvöruhúsum og heimilisiðnaði.
Hjól eru í boði á hótelinu og tuk-tuk er afar hentugt farartæki. Gestir á vegum Stílvopnsins hafa flestir verið fljótir að koma sér upp eigin ökumanni. Svo er bara kortersferð með ferju yfir til Ernakulam ef fólk vill kynnast ys og þys nútíma stórborgar.
Secret Garden
Heimilislegt og fallegt Secret Garden-hótelið í Fort Kochi er í rúmlega hundrað ára gömlu húsi í nýlendustíl. Það er eftirminnileg upplifun að stíga inn úr erlisömu borgarumhverfinu inn í þessa friðsælu vin sem ég leyfi mér að kalla paradís.
Árið 2005 féll arkitektinn og Seyðfirðingurinn Þóra Guðmundsdóttir (Thora Bergny) fyrir húsinu og hótelið hefur hún rekið frá árinu 2007. Þóra hefur lengi rekið Hafölduna á Seyðisfirði og haft mikil áhrif á skipulagsmál þar eystra. Nú er hún reyndar að reisa sér hús í Munnar-þjóðgarðinum enda er dagleg stjórnun Secret Garden komin í hendur hótelstjórans Faizal sem hefur langa reynslu af að þjóna okkur Íslendingum.
Á Secret Garden eru gestir og starfsfólk ein stór fjölskylda og allir eru boðnir og búnir að upplýsa, fræða og aðstoða. Á námskeiðum Stílvopnsins hafa þátttakendur líka verið duglegir að miðla hver með öðrum af öllu því stórkostlega sem þeir upplifa – auk þess sem það er hluti af námskeiðinu að deila því sem fyrir skilningarvitin ber. Eiginleg fararstjórnun er því ekki í boði heldur er fólk aðstoðað við að bjarga sér sjálft.
Herbergin eru 9 með aðstöðu fyrir 16 manns með loftkælingu, verönd, sérbaðherbergi, ísskáp, kaffi/te, öryggishólf og WiFi sem getur verið mishratt þegar netglaðir Íslendingar fylla hótelið. Sundlaug og jógatímar eru á staðnum og í næstum húsum er hægt að fá hvers kyns meðferðir. Flestir koma sér upp eigin nuddara og klæðskera. Og í næstu götu er tannlæknastofa hins færa dr. Abrahams Sebastian.
Stílvopnið – valdefling og sköpun
Ég Björg Árnadóttir stofnaði Stílvopnið árið 2025 en ritlist hef ég kennt í fjörutíu ár, hérlendis og erlendis auk þess að skrifa alla ævi sjálf. Ég hef alla tíð kennt fullorðnum nema árin sem ég kenndi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna hef ég mikinn áhuga á að efla fólk með aðferðum sköpunar og hef til dæmis tekið þátt í fjölda alþjóðlegria verkefna á sviði valdeflingar og inngildingar.
