Hæglætisferð til Kerala er góð hugmynd

Kerala-fylki

Kerala liggur við Malabarströndina á suðvesturhluta Indlands. Fylkið er lítið, þéttbýlt og afar frjósamt. Uppi í fjöllunum er gróskumiklir regnskógar en meðfram ströndinni þéttriðið net lóna og skurða sem kölluð eru The Backwaters og eru í senn samgönguleiðir og vinsælir ferðamannastaðir. Sólarhrings sigling á þessum slóðum með eigin skipstjóra, kokki og þjóni er besta slökun sem ég hef fengið um ævina.  

Menntunarstig er hátt í Kerala og enskukunnátta útbreidd sem auðveldar okkur ferðalagið. Og að sjálfsögðu eiga hin þekktu, indversku ayurveda-læknavísindin þarna uppruna sinn þannig að auðvelt er að fá bót við hvers kyns meinum með jurtum, heilandi mataræði og olíulöðrandi líkamsmeðferðum. Kynni mín af indverskum lifnaðarháttum í þremur ferðum hafa haft afgerandi áhrif á heilsufar mitt. Ég get varla beðið þeirrar fjórðu, haustið 2026.

Í Kerala skiptir fólk sér ekki af því á hvað nágranninn trúir enda standa kirkjur, moskur og hof gjarnan hlið við hlið. Vegna alls sem Kerala hefur að bjóða er fylkið oft kallað Guðs eigið land. Sjálf vil ég kalla Kerala Indland fyrir byrjendur vegna þess að ekkert hef ég upplifað sem truflar tilfinningalíf mitt.

Indland og Indland getur nefnilega verið tvennt ólíkt.

Kochi-borg

Borgin Kochi, drottning Arabíuhafs, hefur frá fornu fari verið miðstöð kryddviðskipta á vesturströnd Indlands. Á síðari árum hefur rík menningararfleifðin gert borgina á vinsælum áfangastað innlendra og erlendra ferðamanna. Þar er til dæmis haldinn þekktur Biennal sem freistar listunnenda hvaðanæva að.

Áhrifa portúgalskrar, hollenskrar og breskrar nýlendustefnu gætir í byggingarlistinni en Vasco da Gama lést einmitt í Kochi árið 1524.  Tákn borgarinnar er hins vegar Kínversku fiskinetin frá 14. öld. Kochi hefur nýlega verið valin 6. besti ferðamannastaður Indlands (Outlook Traveller, 2025), sjöunda besta borg heims að heimsækja (Lonely Planet, 2020) og einn besti áfangastaður í Asíu (Condé Nast Travaller, 2024).

Ólík nöfn borgarinnar geta valdið ruglingi; Kochi, Cochin, Fort Kochi og Ernakulam. Secret Garden hótelið er í Fort Kochi, friðsælli og öruggri byggð á indverskan mælikvarða. Um tíu mínútna gangur er frá hótelinu til Princess Street en þar er hverfi verslunar, veitingahúsa og þjónustu. Halda má áfram gangandi, hjólandi eða með rickshaw (tuk tuk) áfram til Jew Town, sögufrægs hverfis þúsunda ára byggðar Cochin-gyðinganna. Paradesi-sýnagógan, elsta sýnagóga breska heimsveldisins, er þó orðin að safni þar sem byggð gyðinga hefur lagst af í Kochi. Allt í kringum sýnagóguna liggja þröngar götur fullar antíkbúðum, kryddvöruhúsum og heimilisiðnaði.

Hjól má fá lánuð á hótelinu og tuk-tuk er afar hentugt farartæki. Gestir á vegum Stílvopnsins hafa flestir verið fljótir að koma sér upp eigin ökumanni.

Svo er bara kortersferð með ferju yfir til Ernakulam ef fólk vill kynnast ys og þys nútíma stórborgar.

Secret Garden

Heimilislegt og fallegt Secret Garden-hótelið í Fort Kochi er í rúmlega hundrað ára gömlu húsi í nýlendustíl. Það er eftirminnileg upplifun að stíga úr erlisömu borgarumhverfinu inn í þessa friðsælu vin sem ég leyfi mér að kalla paradís.

Árið 2005 féll arkitektinn og Seyðfirðingurinn Þóra Guðmundsdóttir (Thora Bergny) fyrir húsinu en hótelið hefur hún rekið frá árinu 2007. Þóra hefur líka lengi rekið Hafölduna á Seyðisfirði og haft mikil áhrif á skipulagsmál þar eystra. Nú reisir hún sér hús í Munnar-þjóðgarðinum enda er dagleg stjórnun Secret Garden komin í hendur hótelstjórans Faizal sem hefur eins og annað starfsfólk langa reynslu af að þjóna okkur Íslendingum.  

Á Secret Garden eru gestir og starfsfólk ein stór fjölskylda og allir eru boðnir og búnir að upplýsa, fræða og aðstoða. Á námskeiðum Stílvopnsins hafa þátttakendur líka verið duglegir að miðla hver með öðrum af öllu því stórkostlega sem þeir upplifa – auk þess sem það er hluti af námskeiðinu að deila því sem fyrir skilningarvitin ber. Eiginleg fararstjórnun er því ekki í boði heldur er aðstoð við við að bjarga sér sjálf/ur.

Herbergin eru 9 með aðstöðu fyrir 16 manns. Þar er loftkæling, verönd, sérbaðherbergi, ísskápur, kaffi/te, öryggishólf og WiFi sem getur reyndar verið mishratt þegar netglaðir Íslendingar fylla hótelið. Sundlaug og jógatímar eru á staðnum og í næstu húsum er má fá hvers kyns meðferðir.  Flestir koma sér upp eigin nuddara og klæðskera. Og í næstu götu er tannlæknastofa hins afar færa dr. Abrahams Sebastian þar sem aldrei færri en fjórir horfa upp í mann í einu.

Stílvopnið – valdefling og sköpun

Ég heiti Björg Árnadóttir stofnaði Stílvopnið árið 2025 en ritlist hef ég kennt í fjörutíu ár, hérlendis og erlendis auk þess að hafa skrifað alla ævi sjálf. Ég hef alla tíð kennt fullorðnum nema árin sem ég kenndi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna hef ég mikinn áhuga á að efla fólk með aðferðum sköpunar og heftekið þátt í fjölda alþjóðlegria verkefna á sviði valdeflingar og inngildingar.