Ef svo ólíklega vill til að einhver forfallist

Frá upphafi hefur verið skýrt að ekki er um ferðaskrifstofuferð með meðfylgjandi tryggingum að ræða. Tryggingin felst í greiðslukortinu þínu. Einnig má spyrja tryggingarfélagið hvort kaup á viðbótarferðatryggingu breyti einhverju.

Biðlisti

Forfallist einhver áður en miðar verða gefnir út 22. ágúst reynum við finna annan sem tekur yfir greiðslunar. Gott væri að fá áhugasama sem þið vitið um á biðlista.

Ferðaskrifstofan Feria

Feria gefur út miðana. Í því felast þægindi og visst öryggi en hópferðir eru þó aldrei endurgreiddar, hvorki flug einstaklinga né hópsins í heild. Flugfélög endurgreiða yfirleitt ekki vegna óviðráðanlegra hamfara af völdum manna eða náttúru en bæta skaða vegna seinkana og niðurfellingu flugs.

Secret Garden

Ég spurði Secret Garden um endurgreiðslu en líklega hafa þau ekki skilið spurninguna enda hefur aðeins staðfestingargjald verið greitt. Mér finnst ólíklegt að þau eltist við greiðslur forfallaðra en get engu lofað þar sem hótelið hefur verið frátekið fyrir okkur í heilt ár.

Stílvopnið

Allar þessar varúðarráðstafanir ollu því að í fyrsta sinn á ævinni datt mér í hug að sjálf gæti ég  forfallast.

Ég talaði við nokkra ritlistarkennara sem sáu sér ekki fært að vera á bakvakt – en fann svo lausnina: Ef ég fótbrotna á leiðinni út á völl set ég námskeiðið náttúrlega á netið og kenni ykkur og stýri umræðum á zoom.

Til að fá upplýsingar um endurgreiðslu þeirra sem forfallast á lokasprettinum hringdi ég í Neytendasamtökin. Þau tóku málið fyrir á fundi og svöruðu: Verðið sem þú rukkar er gjöf en ekki gjald. Fyrirkomulag hefur verið skýrt frá upphafi, stór hluti vinnunnar er þegar unninn og sum hafa fengið niðurgreiðslu  stéttarfélags. Því er eðlilegt að Stílvopnið endurgreiði ekki úr þessu.

Þótt Stílvopnið styðjist við reglur um löggiltan endurgreiðslutíma geri ég vel við forfallaða með því að bjóða þeim þátttöku í öðru námskeiði. Í þessu tilviki býð ég forfölluðum að sitja tvö námskeiða minna á vetri komanda.

Leiðsögnin

Frá upphafi hefur verið skýrt að ég hef engan tíma til að vera leiðsögumaður í ferðinni. Markmiðið er að gera okkur sjálfbjarga og sjálfbær í þessari litlu borg sem kann að virðast ógnvekjandi í upphafi en reynist svo bæði aðlaðandi og auðratanleg.

Auk mín hafa fjögur í hópnum dvalið á þessum slóðum og starfsfólk SG er boðið og búið að aðstoða.

Ég sting upp á fundi í upphafi ferðar til að skapa skipulag þannig að þið getið leitað hjálpar án þess að álagið á starfsfólkið verði of mikið.

Og að sjálfsögðu verðum við öll leiðsögumenn í Doha.

Hótelherbergin

Herbergin eru afar ólík í hinum sjarmerandi Secret Garden. Tveggja og þriggja manna herbergi eru að sjálfsögðu stærri en eins manns. Auðvitað hýrumst við lítið inni á herbergjunum heldur borgum fyrir afnot af öllu hótelinu.

Það væri leiðinlegt ef samanburður á stærð herbergja eyðilegði ferðina fyrir einhverjum. Ef slíkt gerist, segið frá.