The Backwaters (mynd: Courtesy of Kerala Indian Tourism)

Kerala-fylki

Kerala liggur við Malabarströndina á suðvesturhluta Indlands. Fylkið er lítið, þéttbýlt og afar frjósamt. Uppi í fjöllunum er gróskumiklir regnskógar en meðfram ströndinni þéttriðið net lóna og skurða sem kölluð eru The Backwaters og eru í senn samgönguleiðir og vinsælir ferðamannastaðir. Sólarhrings sigling á þessum slóðum með eigin skipstjóra, kokki og þjóni er besta slökun sem ég hef fengið um ævina.

Menntunarstig er hátt í Kerala og enskukunnátta útbreidd sem auðveldar okkur ferðalagið. Og að sjálfsögðu eiga hin þekktu, indversku ayurveda-læknavísindi þarna uppruna sinn þannig að auðvelt er að fá bót meina sinna  með hvers kyns jurtum, heilandi mataræði og olíulöðrandi líkamsmeðferðum. Kynni mín af indverskum lifnaðarháttum í þremur ferðum hafa haft afgerandi áhrif á heilsufar mitt. Ég get vart beðið þeirrar fjórðu!

Í Kerala skiptir fólk sér ekki af því á hvað nágranninn trúir og þannig standa kirkjur, moskur og hof gjarnan hlið við hlið. Vegna alls sem Kerala hefur að bjóða er fylkið oft kallað Guðs eigið land. Sjálf vil ég kalla Kerala Indland fyrir byrjendur vegna þess að þar hef ég ekkert upplifað sem truflar tilfinningalíf mitt.

Indland og Indland geta nefnilega verið tvennt ólíkt.


Götumynd frá Kochi

Kochi-borg

Borgin Kochi, drottning Arabíuhafs, hefur frá fornu fari verið miðstöð kryddviðskipta á vesturströnd Indlands. Á síðari árum hefur rík menningararfleifðin gert borgina að vinsælum áfangastað innlendra og erlendra ferðamanna. Þar er til dæmis haldinn þekktur Biennal sem freistar listunnenda hvaðanæva að.

Áhrifa portúgalskrar, hollenskrar og breskrar nýlendustefnu gætir í byggingarlistinni en Vasco da Gama lést einmitt í Kochi árið 1524.  Tákn borgarinnar eru hins vegar Kínversku fiskinetin frá 14. öld. Kochi hefur nýlega verið valin 6. besti ferðamannastaður Indlands (Outlook Traveller, 2025), sjöunda besta borg heims að heimsækja (Lonely Planet, 2020) og einn besti áfangastaður í Asíu (Condé Nast Travaller, 2024).

Ólík nöfn borgarinnar geta valdið ruglingi; Kochi, Cochin, Fort Kochi og Ernakulam. Secret Garden hótelið er í Fort Kochi, friðsælli og öruggri byggð á indverskan mælikvarða. Um tíu mínútna gangur er frá hótelinu til Princess Street í hverfi verslunar, veitingahúsa og þjónustu. Halda má áfram gangandi, hjólandi eða með tuk tuk (rickshaw) til Jew Town, sögufrægs hverfis þúsund ára byggðar Cochin-gyðinganna. Paradesi-sýnagógan, elsta sýnagóga breska heimsveldisins, er þó orðin að safni þar sem byggð gyðinga hefur lagst af í Kochi. Allt í kringum sýnagóguna liggja þröngar götur antíkbúða, kryddvöruhúsa og heimilisiðnaðar.

Hjól eru í boði á hótelinu og tuk-tuk er afar hentugt farartæki. Gestir á vegum Stílvopnsins hafa flestir verið fljótir að koma sér upp eigin ökumanni. Svo er bara kortersferð með ferju yfir til Ernakulam ef fólk vill kynnast ys og þys alvöru nútíma stórborgar.


Þóra og Björg bera saman bækur sínar á Secret Garden

Secret Garden

Heimilislegt og fallegt Secret Garden-hótelið í Fort Kochi er í rúmlega hundrað ára gömlu húsi í nýlendustíl. Það er eftirminnileg upplifun að stíga úr erlisömu borgarumhverfinu inn í þessa friðsælu vin sem ég leyfi mér að kalla paradís.

Árið 2005 féll arkitektinn og Seyðfirðingurinn Þóra Guðmundsdóttir (Thora Bergny) fyrir húsinu og hótelið hefur hún rekið frá árinu 2007. Þóra hefur líka lengi rekið Hafölduna á Seyðisfirði og haft mikil áhrif á skipulagsmál þar eystra. Nú reisir hún sér hús í Munnar-þjóðgarðinum enda er dagleg stjórnun Secret Garden komin í hendur hótelstjórans Faizal sem, eins og annað starfsfólk, hefur langa reynslu af að þjóna okkur Íslendingum. Þóra verður þó  með okkar á meðan á námskeiðinu stendur – og svo væri ekki úr vegi að ferðast til Munnar.

Á Secret Garden eru gestir og starfsfólk ein stór fjölskylda og allir boðnir og búnir að upplýsa, fræða og aðstoða. Á námskeiðum Stílvopnsins hafa þátttakendur líka verið duglegir að miðla hver með öðrum af öllu því stórkostlega sem þeir upplifa – auk þess sem það er hluti af námskeiðinu að deila því sem fyrir skilningarvitin ber. Eiginleg fararstjórn er því ekki í boði heldur aðstoð við að bjarga sér sjálf/ur.

Herbergin eru 9 með aðstöðu fyrir 16 manns. Þar er loftkæling, verönd, sérbaðherbergi, ísskápur, kaffi/te, öryggishólf og WiFi sem getur verið mishratt þegar netglaðir Íslendingar fylla hótelið. Sundlaug og jógatímar eru á staðnum og í næstu húsum má fá hvers kyns meðferðir.  Flestir koma sér upp eigin nuddara, klæðskera og snyrtistofum. Og í næstu götu er tannlæknastofa hins afar færa dr. Abrahams Sebastian þar sem aldrei færri en fjórir horfa upp í mann í einu.

Stílvopnið – valdefling og sköpun

Undirrituð stofnaði Stílvopnið árið 2015 en ritlist hef ég kennt í fjörutíu ár, hérlendis og erlendis auk þess að skrifa sjálf alla ævi . Ég hef alltaf kennt fullorðnum nema árin sem ég kenndi við Fjölbrautaskólann við Ármúla.

Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna hef ég mikinn áhuga á að efla fólk með aðferðum sköpunar og hef  tekið þátt í fjölda alþjóðlegra sköpunarverkefna á sviði valdeflingar og inngildingar. Haustið 2024 hlutum við Stílvopnið alþjóðleg hvatningar- og nýsköpunarverðlaun kvenna, GlobalWIIN.

Ég hlakka til að hafa þig með í ævintýralegum ritbúðum á Indlandi,

Björg Árnadóttir