Námskeiðið hefst á þriðja degi á Secret Garden. Þéttleiki námskeiðsdaganna ræðst af aðstæðum og óskum þátttakenda hversu sinni.
Við byrjum á félagsörvandi æfingum til að kynnast, byrja að skrifa og skapa saman örggt umhverfi til að vaxa og þroskast í skrifum okkar.
Því næst horfum við inn á við í æfingum sem fjalla um ævi okkar og innri mann.
Að því loknu opnum við fyrir öll skilningarvit í leiðangrum þar sem skrifað er um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskiptanna sem við eigum við innfædda.
Þá skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum sögur sem leiða okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar. Við sagnaskrifin leitumst við að nýta okkur það sem við lærðum í fyrri skrifum.
Í lok námskeiðs fléttum við saman staðreyndum, upplifunum, tilfinningum og afli ímyndunarinnar í vandaðri grein eða færslu um valið efni úr ferðalaginu.
En auðvitað er hverjum höfundi frjálst að fylgja ekki planinu heldur elta eigin hugmyndir.
Hver fjögurra tíma sessjón hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er hópnum skipt og unnið í minni hópum.
