Verð herbergja

Eins og HÉR má sjá eru herbergin á Secret Garden mjög misstór og geta hýst mismarga. Verðin geta því verið misjöfn en í fyrri ferðum var gætt jafnræðis við röðun í herbergi.

Verði flugs

Hægt er að ferðast til Cochin Airport á mismunandi vegu og fyrir ólík verð.

Haustið 2025 kaus meirihluti hópsins um það bil 200.000 kr. flug fram og tilbaka frá Keflavík til Kochi með millilendingu í Osló og þriggja daga stoppi í Katar en árið á undan var stoppað í Dubai.

Millilending í arabísku furstadæmi gerir ferðalagið auðveldara og sýnir okkur annað land, gjörólíkt Indlandi. Einnig má millilenda annars staðar, t.d. í Dehli eða Mumbai.

Hægt er að koma verðinu niður í 150.000 kr. með óþægilegra ferðalagi og fleiri millilendingum.

Í lengri flugum eru hægt að kaupa ýmis þægindi, s.s. kojur, lazy boy eða flugvallarhótel yfir blánóttina. Verð eru misjöfn en hér geri ráð fyrir 50.000 krónum fyrir auka þægindi.

Verð á flugi gæti því verið um 150-250.o00 kr.  Gúgglið möguleikana!

Og svo þarf að sjálfsögðu ekki að ferðast beint frá Íslandi heldur má koma á námskeiðið hvaðanæva að úr heiminum.

Björg s. 899 6917 / bjorg@stilvopnid.is