Verð flugs
Í fyrri ferðum var flogið í gegnum furstadæmin fyrir um 150.000 ISK. Sumir þátttakendanna hafa þegar bókað slík flug (í gegnum Abu Dabi) þrátt fyrir að í ljósi heimsmála geti því hugsanlega fylgt einhver áhætta.
Önnur, alls 12, hafa tekið sig saman um að ferðast á öruggan hátt til Indlands, beint frá Evrópu. Farið verður með ferðaskrifstofunni Kilroy: Keflavík-Helsinki-Delhi-Kochi (FinnAir og Air India). Ferðin er einstaklingsmiðuð pakkaferð. Henni fylgja kostir ferðaskrifstofuferðar en hver og einn bókar miðann sinn sjálfur (til að heimferðartíminn þurfi ekki að vera sá sami) Hópurinn keypti flugin á 350.000 ISK en verð getur hafa breyst.
Og auðvitað getur hver og einn komið sér út á eigin vegum.
Verð herbergja
Eins og HÉR má sjá eru herbergin á Secret Garden mjög misstór og geta hýst mismarga. Verðin geta því verið misjöfn en í fyrri ferðum var gætt jafnræðis við röðun í herbergi.
Velji mörg eins manns herhergi eða taki með sér ,,töskubera“ verður leitað á náðir nærliggjandi hótela. Secret Garden verður þó alltaf heimili okkar allra þótt sum kunni að dvelja annars staðar yfir blánóttina.
Fundað verður um þetta þegar ferðin er fullmönnuð.
Herbergjaskipan
Hér birtist skipan í herbergi þegar þar að kemur:
Breiðdalsvík Suite
Madam’s suite and guestroom
Double room
Double room
Double room
Triple room
Single room
Single room
Single room
Single room
Residence double room
Björg s. 899 6917 / bjorg@stilvopnid.is
