Hetjuferðin – ritlistarnámskeið 2.-23. mars 2027
69.900 kr.
- Staður: Sjávarklasinn, Grandagarður 16. 101 Rvk. Aðgengi
- Stund: Þriðjudagskvöld 2.-23. mars 2027 kl. 17:00-21:00
- Kennari: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari, rithöfundur og MA í kennslufræðum skapandi greina.
- Verð: 69.900 kr. Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.
Skráning og greiðslur
Berist staðfestingarpóstur ekki: Athugið ruslpóst eða hafið samband.
Ekki þarf að greiða við skráningu.
Endurgreiðsluskilmálar.
Um námskeiðið
Hugmyndafræði ævafornrar Hetjuferðarinnar er kynnt og hetjuferðir skrifaðar; hvers kyns sögur sem fylgja hetjunni á þroskaferðalagi hennar. Höfundar skrifa ýmist um skáldaðar persónur eða þroskaferðalög eigin lífs. Ég hef kennt Hetjuferðina síðan ég kynntist kennslufræði hennar í stóru Evrópuverkefni fyrir um tíu árum.
Formið er frjálst þótt flest kjósi að skrifa sögu.
Enn önnur koma einkum til að skilja hugmyndafræði Hetjuferðarinnar og tileinka sér hana í lífi og starfi. (Eitt sinn var hjá mér grunnskólakennari sem eftir hvern Hetjuferðartíma sagði bekknum sínum frá upplifunum hetjunnar sem hún var að skapa og samkennurum sínum frá eigin persónulegri hetjuferð í skrifunum).
Fólki kann að virðast það vera formúluskrif að fylgja hetju á þeirri þekktu vegferð sem lýst er hér að neðan. En ekkert er sem sýnist. Námskeiðið reynist spennandi óvissuferð enda mótast kennslan mjög af því sem þátttakendur hafa fram að færa hverju sinni.
Í upphafi veit enginn hvert hann stefnir og alltaf er eitthvað um það bil að fara að gerast. Höfundum tekst þó undantekningarlaust að komast óhultum á leiðarenda, reynslunni ríkari og jafnvel með bók í farteskinu.
Um hvað snýst Hetjuferðin?
Ef grannt er skoðað fjalla flestar sögur heims um ævintýraferð skáldaðrar hetju eða þroskaferð höfundar. Ódysseifskviða er þekktasta klassíska hetjuferð vestrænna bókmennta.
Hetjan í sínum þekkta heimi heyrir kall til breytinga. Til að geta hlýtt kallinu þarf hetjan að horfast í augu við ögrandi þroskaverkefni. Hetjan tekst á við áskoranir og deyr jafnvel táknrænum dauða en rís upp og öðlast gjöf í ferli friðþægingar og sátta. Umbreytt snýr hetjan aftur til síns heima með gjöf í farteskinu sem gagnast samfélagi hennar öllu.
Á þessu ævintýralega námskeiði er fléttað á frjálslegan hátt saman hugmyndum goðsagnafræðingsins Joseph Campbell, geðlæknisins Carl Gustav Jung og handritshöfundarins Christopher Vogler en bók hins síðastnefnda, Ferð höfundarins (1992), kom af stað flóðbylgju fantasíubókmennta og -bíómynda. Ofangreindar hugmyndir fléttast saman við fjörutíu ára kennslureynslu mína.
Umbreytingarævintýrið: Sjónvarpsviðtal um Hetjuferðina o.fl.
Fyrirkomulag námskeiðs
Þri. 2. mars. kl. 17:00-21:00: HETJAN
Kynning á hugmyndafræði Hetjuferðarinnar. Upphitun með aðferðum sem hrista þátttakendur saman og hjálpa þeim að setja sig í spor hetjunnar. Skrifað og skrafað um hetjuna frá ólíkum sjónarhólum.
Þri. 9. mars kl. 17:00-21:00: HETJAN OG HINDRANIRNAR
Hetjan horfist í augu við hindranir sínar áður en hún tekur skrefið inn í hinn óþekkta heim.
Þri. 16. mars kl. 17:00-21:00: HETJAN OG HEIMUR HINS ÓÞEKKTA
Skrifað um ævintýri, þroskaverkefni og eldskírn hetjunnar í hinum óþekkta heimi.
Þri. 23. mars 17:00-21:00: HETJAN, HEIMFERÐIN OG GJÖFIN
Áfram er skrifað um hinn óþekkta heim þar til hetjan, í ferli friðþægingar og sátta, öðlast gjöf sem hún snýr með aftur til síns heima.
Ekki eru lögð fyrir heimaverkefni en þátttakendum er frjálst að skrifa að vild milli skipta.
Ummæli
Hópurinn í mars 2024:
Við erum ekki söm. Það urðu ákveðnir töfrar. Kennslan leiðir okkur svo víða, dyrnar opnaðar á listilegan hátt og húmor varðar leiðina. Trúnaðartraust skapaðist og áskorun ferðalagsins efldi okkur í að tileinka okkur þessa sýn sem gaf okkur alveg ótrúlega mikið.
Hildur Helgadóttir (Hetjuferðin, 2018):
Frábært námskeið! Hetjuferðalagið færir manni hjálplegan og kærkominn ramma utan um lausbeislaðar og tilviljanakenndar hugmyndir. Góð leið hvort heldur til að skálda eða skoða eigin lífsgöngu og skilja ýmislegt betur.
Tengdar vörur
Ritun endurminninga 4.–25. feb. 2027
- Staður: Sjávarklasinn, Grandagarði 16, 101 Reykjavík. Aðgengi
- Stund: Fimmtudagskvöld 4. – 25.feb. (16 klst.) 17:00-21:00.
- Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari og rithöfundur.
- Verð: 69.900 kr. 10% afsláttur fyrir 67+ (62.900 kr.) Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.
