Skrifað með öllum skilningarvitum á Indlandi 29. okt.–13. nóv. Biðlisti.
220.000 kr.
Biðlisti fyrir 2026 – áhugaskráning fyrir 2027
Vertu eins og heima hjá þér í Kochi
Komdu í ógleymanlega ritlistarferð til Kerala á Indlandi. Við dveljum á notalega Secret Garden-hótelinu í Kochi, þar sem gefst einstakt tækifæri til að skrifa, skapa, njóta umhverfisins og kynnast indversku mannlífi.
Ég hef kennt ritlist í rúmlega 40 ár og hef haldið ritlistarferðir í Leynilundinum hennar Þóru Bergnýjar tvisvar áður.
Námskeiðið er fyrir alla – jafnt byrjendur sem lengra komna.
„Þú hjálpaðir mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Fyrirkomulag
36 klukkustunda námskeið; 4 klst. 8 morgna af 15 á Secret Garden og 4 klst. að auki.
Hvað kostar (2026)?
Námskeið og utanumhald: 220.000 kr.
Greitt Stílvopninu í áföngum.
Gisting í 15 nætur með morgunmat: 80.000–120.000 kr. að eigin vali
Greitt beint til Secret Garden við komu.
Flug: Þátttakendur sjá sjálfir um flug til Kochi. Hópur hefur pantað Finnair-flug frá Evrópu til Indlands og hægt er að bætast í hann.
Indland er ódýrt land til að ferðast um og dveljast í.
Ferðafélagar sem ekki sækja námskeiðið eru velkomnir, en gætu þurft að gista annars staðar.
Biðlisti 2026 / áhugaskráning 2027
Skráðu upplýsingar um þig og hvort þú vilt fara ’26 eða ’27.
Nánari upplýsingar:
bjorg@stilvopnid.is · 899 6917

Úr kennslustund haustið 2023
Hvað gerum við?
Við byrjum á léttum ritlistaræfingum til að skapa trúnaðartraust í hópnum.
Því næst horfum við inn á við í skrifum um ævi okkar og innri mann.
Að því loknu opnum við öll skilningarvit í leiðangrum um umhverfið; skrifum um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og viðbragða okkar við iðandi mannlífinu.
Þá skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum smásögu sem leiðir okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey). Leitast er við að nýta það sem við lærðum í fyrri skrifum en bæta afli ímyndunarinnar við.
Að lokum drögum við saman upplifanir okkar og bætum við staðreyndum, þekkingu og skoðunum í vandaðri ferðagrein eða -færslu.
Myndband frá fyrsta námskeiðinu (’23)
Hver fundur hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er þátttakendum skipt í minni hópa. Skrifin eru líka óhjákvæmilega rædd í dagsins önn.
Sum kjósa að skrifa meira en lagt er fyrir,
Sérstaklega er mælt með lestri bókar Arundhati Roy, Guð hins smáa, sem gerist í Kerala.
Sé áhugi fyrir hendi eru skipulagðar umræður um hvernig nýta megi námsefnið í ólíkum störfum þátttakenda.
Umsagnir
,,Í hópnum skipti hvorki bakgrunnur né aldur máli. Dýrmæt þykja mér þau kynni og margt af því sem ég hef lært af Björgu og hópnum mun ég taka með mér og raða vandlega í verkfærakistu lífsins. Á námskeiðinu hef fengið að kynnast gagnlegum ráðum til að nálgast betur meitlun máls og hugsana. Reynsla og þekking Bjargar á viðfangsefninu er framúrskarandi og fagleg, byggð haldgóðri þekkingu frá henni og öðrum fræðimönnum á þessu sviði.“
Alda Árnadóttir verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgur
,, … og svo líka bara að hlusta á alla hina, að vera í hópi, það er svo magnað. Ég hef haft þessa hugmynd um að rithöfundurinn eigi að vera lokaður einn uppi í turni en í þessu umhverfi meikar það fullkominn sens að vera með öðrum í hópi, að hlusta á það sem hinir segja og bera skrif sín undir aðra.“
Steiney Skúladóttir spunaleikkona og sketsahöfundur
,,Mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Þegar ég segi að ferðin opni nýjar víddir hugsans meina ég að auðvitað er hugurinn þarna, síkvikur, en þú hjálpar mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri
Myndir frá námskeiðunum ’23 og ’25


