SKRIFAÐ MEÐ ÖLLUM SKILNINGARVITUM (38 klst.)
Ritlistarnámskeið í Kochiborg í Keralahéraði Indlands 29. okt. – 13. nóv. 2026

Kennari: Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina.

Verð: 220.000 kr.

Á námskeiðslýsingu hér að neðan má sjá að námskeiðiðer þess eðlis að:
1) ekki er hægt að kenna það á Íslandi þar sem framandi umhverfi er grundvöllur sköpunarinnar
2) einungis íslenskur kennari getur kennt það þar sem það snýst um að auka ritfærni á íslensku.

https://stilvopnid.is/vorur/indland-skrifad-med-ollum-skilningarvitum/

Lýsing

Við byrjum á félagsörvandi æfingum til að kynnast, byrja að skrifa og skapa saman örggt umhverfi til að vaxa og þroskast í skrifum okkar.

Þá horfum við inn á við í æfingum sem fjalla um ævi okkar og innri mann.

Að því loknu opnum við fyrir öll skilningarvit í leiðangrum um umhverfið; skrifum um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og viðbragða okkar við öllum þessum upplifunum.

Því næst skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum sögur sem leiða okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey). Við leitumst við að nýta okkur það sem við lærðum í fyrri skrifum en bæta afli ímyndunarinnar við.

Í lok námskeiðs fléttum við saman staðreyndum, upplifunum, tilfinningum og ímyndunarafli í vandaðri grein eða færslu um valið efni úr ferðalaginu (ferðaskrif).

Hver fjögurra tíma fundur (alls átta fundir) hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er hópnum skipt og unnið í minni hópum.

Textar eru líka lesnir á kvöldvökum og skrifin eru auk þess óhjákvæmilega rædd í dagsins önn.
32 kennslustundir, undirbúningsfundir áður en farið er og kvöldvökur í Kochi eru samtals 38 klst.

Sérstaklega er mælt með lestri bókar Arundhati Roy, Guð hins smáa, sem gerist í Kerala.

 

Umsagnir

,,Í hópnum skipti hvorki bakgrunnur né aldur máli. Dýrmæt þykja mér þau kynni og margt af því sem ég hef lært af Björgu og hópnum mun ég taka með mér og raða vandlega í verkfærakistu lífsins. Á námskeiðinu hef fengið að kynnast gagnlegum ráðum til að nálgast betur meitlun máls og hugsana. Reynsla og þekking Bjargar á viðfangsefninu er framúrskarandi og fagleg, byggð haldgóðri þekkingu frá henni og öðrum fræðimönnum á þessu sviði.“
Alda Árnadóttir verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgur

,, … og svo líka bara að hlusta á alla hina, að vera í hópi, það er svo magnað. Ég hef haft þessa hugmynd um að rithöfundurinn eigi að vera lokaður einn uppi í turni en í þessu umhverfi meikar það fullkominn sens að vera með öðrum í hópi, að hlusta á það sem hinir segja og bera skrif sín undir aðra.“
Steiney Skúladóttir spunaleikkona og sketsahöfundur

,,Mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Þegar ég segi að ferðin opni nýjar víddir hugsans meina ég að auðvitað er hugurinn þarna, síkvikur, en þú hjálpar mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. Ráðuneytisstjóri