Skrifað með öllum skilningarvitum á Indlandi 29. okt.-13. nóv. 2026

220.000 kr.

EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ VERA EINS OG HEIMA HJÁ SÉR AUSTUR Á INDLANDI!

Ferðin er sérstök og því eru hér miklar upplýsingar:

Dagana 29. okt.-13. nóv. 2026 stendur Stílvopnið í þriðja sinn fyrir hæglætisferð til Kochiborgar í Kerala, syðsta fylki Indlands. Hópurinn dvelur hjá Þóru Guðmundsdóttur á Secret Garden hótelinu og rannsakar  umhverfið, eigið ímyndarafl og innra líf undir stjórn Bjargar Árnadóttur, ritlistarkennara.

Ferðin er fyrir þau sem langar að kynnast Indlandi með öllum skilningarvitum og uppgötva um leið eigin höfundarödd í heilsusamlegu umhverfinu. Námskeiðið er fyrir byrjendur og lengra komna líkt og jógatími þar sem fólk einbeitir sér að eigin vellíðan og færni án samanburðar við aðra.

Pláss er fyrir 16, unga og aldna, konur, kvár og karla. Í fyrri ferðum skapaði fimmtíu ára aldursbilið skemmtilega fjölbreytt samskipti og skrif.

Hæglætiferð til Kerala er góð hugmynd

Námskeiðslýsing

er neðar í síðunni.

Fyrirkomulag

Námskeiðið (38 klst.) stendur yfir 8 af 15 morgnum á Secret Garden, 4 klst. í senn. Auk þess upphitun áður en lagt er í hann og upplestur á hótelkvöldvökum.

Um miðbik dvalar er nokkurra daga hlé sem nota má til ferðalaga eða frekari skrifa.

Lengja má ævintýrið í báða enda með ferðalögum á eigin vegum eða í félagsskap hinna. Hótelið veitir upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og aðstoð við að komast þangað.

Skipulögð ferð á eigin vegum

Þátttakendur greiða Stílvopninu námskeiðið, Secret Garden gistinguna og flugfélaginu flugið.

Fólk kemur sér sjálft á áfangastað en meðal þeirra sem skráðir eru er mikill áhugi á að verða samferða út.

Miðað við ástand heimsmála virðist ákjósanlegast að fljúga með KLM frá Amsterdam til Góa á Indlandi á  og þaðan til Kochi.

Eins og sjá má hér að neðan fylgja því litlar fjárhagslegar skuldbindingar að skrá sig.

Ferðalangar þurfa að hafa eigin ferðatryggingar.

Verð og greiðslufyrirkomulag

Námskeið
220.000 kr.
40.000 kr. óafturkræft staðfestingargjald, tvær greiðslur í viðbót fram á sumar (endurgreiddar fram í miðjan september).

Gisting Secret Garden (15 nætur með morgunmat)
80.000 – 150.000 kr/mann (ræðst af ýmsum breytum)
25.000 kr. fyrirframgjald við skráningu, annars greitt við komu.

Flug
150.000-250.000 kr. (ræðst af vali flugfélags og flugleiða)
Greitt þegar þér hentar.

Sem sagt:

Verð fyrir 38 klst. námskeið, gistingu m/morgunmat og flug er á bilinu 450-620.000 kr. (flugverð án ábyrgðar). Greiðslur eru dreifðar frá skráningu fram á komudag.

Ákaflega ódýrt er að dvelja á Indlandi og flest sem freistar kostar aðeins brot af íslensku verði.

Sum stéttarfélög hafa niðurgreitt fyrri námskeið.

Nánari skýringar á verðum HÉR

Töskuberar

Taka má fleiri með í ferðina. Þótt kannski verði ekki rúm fyrir þá í gistihúsinu er nóg af hótelum í næstu götum.

Veður

Nóvember er góður mánuður en þá  hefst þurra árstíðin með dagshita á milli 29-32°C.

Gest- og gleðigjafar

Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina, kennir.
Þóra Bergný Guðmundsdóttir, eigandi Secret Garden, er gestum innan handar í Kochi.

Skráning

Skráðu áhuga þinn hér að neðan.

Þú færð sendar nánari upplýsingar um greiðslu- og endurgreiðslufyrirkomulag, töskubera og niðurgreiðslu stéttarfélags.

Ekki þarf að greiða staðfestingargjald við áhugaskráningu – flettu bara framhjá greiðslusíðunum

 

Nánari lýsing

Námskeiðslýsing

Við byrjum á félagsörvandi æfingum til að kynnast og hefja skrifin. Öruggt umhverfi er skapað til að hópurinn vaxi og þroskist í sköpun sinni.

Síðan leikum við okkur í skrifum um ævi okkar og innri mann.

Því næst opnum fyrir við öll skilningarvit í leiðöngrum um umhverfið. Við skrifum um það sem sjáum, heyrum, snertum, skynjum, smökkum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og tilfinningalegra viðbragða okkar við öllum þessum skynhrifum.

Skynhrifsskrifin nýtum við svo sem  sögusvið smásögu sem síðar leiðir okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey).

Lokaverkefnið er að leita heimilda og flétta staðreyndum í ferðaskrifum byggðum á því sem fyrir skilningarvitin hefur borið, t.d. grein, færslu eða sögu um valið efni úr ferðinni.

Hver fjögurra tíma fundur hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin eru leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Sé þess þörf er hópnum skipt og unnið í minni hópum.

Myndir úr ferðum ’23 og ’25.
 
Úr kennslustund haustið 2023

Indlandsævintýrið –  námskeiðslýsing (38 klst.)

Við byrjum á félagsörvandi æfingum til að kynnast, byrja að skrifa og skapa saman örggt umhverfi til að vaxa og þroskast í skrifum okkar.

Þá horfum við inn á við í æfingum sem fjalla um ævi okkar og innri mann.

Að því loknu opnum við fyrir öll skilningarvit í leiðangrum um umhverfið; skrifum um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og viðbragða okkar við öllum þessum upplifunum.

Því næst skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum sögur sem leiða okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey). Við leitumst við að nýta okkur það sem við lærðum í fyrri skrifum en bæta afli ímyndunarinnar við.

Í lok námskeiðs fléttum við saman staðreyndum, upplifunum, tilfinningum og ímyndunarafli í vandaðri grein eða færslu um valið efni úr ferðalaginu (ferðaskrif).

Hver fjögurra tíma fundur hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er hópnum skipt og unnið í minni hópum.

Textar eru líka lesnir á kvöldvökum og skrifin eru auk þess óhjákvæmilega rædd í dagsins önn.

Sérstaklega er mælt með lestri bókar Arundhati Roy, Guð hins smáa, sem gerist í Kerala.

Jógatímar eru í boði á hótelinu áður en kennsla hefst alla morgna.

Umsagnir

,,Í hópnum skipti hvorki bakgrunnur né aldur máli. Dýrmæt þykja mér þau kynni og margt af því sem ég hef lært af Björgu og hópnum mun ég taka með mér og raða vandlega í verkfærakistu lífsins. Á námskeiðinu hef fengið að kynnast gagnlegum ráðum til að nálgast betur meitlun máls og hugsana. Reynsla og þekking Bjargar á viðfangsefninu er framúrskarandi og fagleg, byggð haldgóðri þekkingu frá henni og öðrum fræðimönnum á þessu sviði.“
Alda Árnadóttir verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgur

,, … og svo líka bara að hlusta á alla hina, að vera í hópi, það er svo magnað. Ég hef haft þessa hugmynd um að rithöfundurinn eigi að vera lokaður einn uppi í turni en í þessu umhverfi meikar það fullkominn sens að vera með öðrum í hópi, að hlusta á það sem hinir segja og bera skrif sín undir aðra.“
Steiney Skúladóttir spunaleikkona og sketsahöfundur

,,Mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Þegar ég segi að ferðin opni nýjar víddir hugsans meina ég að auðvitað er hugurinn þarna, síkvikur, en þú hjálpar mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri

Nokkrar myndir frá námskeiðunum ’23 og ’25

Hópurinn haustið 2025 á Secret Garden með vinum.