Skrifað með öllum skilningarvitum – Indlandsævintýrið 29. okt. til 13. nóv.
220.000 kr.
Skráning er hafin í þriðja Indlandsævintýri Stílvopnsins! Einstakt tækifæri til að kynnast Indlandi innanfrá.
Dagana 29. okt.-13. nóv. stendur Stílvopnið í þriðja sinn fyrir ritbúðum á Secret Garden hótelinu í Kochi-borg í Kerala, syðsta fylki Indlands. Í þessari hæglætisferð rannsaka ferðalangar Kochi-borg, eigið ímyndunarafl og innra líf með skrifum sínum.
Ferðin er fyrir þau sem langar að kynnast Indlandi með öllum skilningarvitum, finna höfundarrödd sína og lifa í heilsusamlegu hæglæti um hríð, byrjendur jafnt sem lengra komna á ritvellinum.
Einhverra hluta vegna spyr fólk hvort ferðin sé bara fyrir konur. Svarið er NEI, hún er fyrir alla, konur, kvár og karla og í fyrri ferðum hefur aldursbilið verið fimmtíu ár!
Fyrirkomulag
Námskeiðslýsingu finnurðu hér að neðan en fyrirkomulag dvalar er þetta:
Námskeiðið er 38 klst. Það stendur yfir átta af þeim fjórtán morgnum sem dvalið er í Kochi, fjórar klst. í senn, auk upplestrarstunda á kvöldvökum og upphitunar áður en lagt er af stað.
Um miðbik dvalar er nokkurt hlé sem nota má til ferðalaga eða frekari skrifa.
Lengja má ævintýrið í báða enda með ferðalögum á eigin vegum eða í félagsskap hinna. Hótelið veitir upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og aðstoð við að komast þangað.
Auk þess hefur ferðaskrifstofan Útþrá boðist til að skipuleggja frekara ferðalag fyrir áhugasama, allan hópinn eða hluta hans.
Hér er því ekki um pakkaferð að ræða heldur ferð sem þróast í meðförum hópsins og úr verður einskonar hópferð á eigin vegum.
Námskeið, flug og gisting eru greidd viðkomandi þjónustuaðilum; Stílvopninu námskeiðið, Secret Garden gistingin og flugið flugfélaginu. Ferðast má á eigin vegum eða verða samferða öðrum úr hópnum. Þátttakendur þurfa að hafa eigin ferðatryggingar.
Hvað er sjá í Kochi og Kerala?
Indlandsævintýrið 2023 (myndband)
Verð og greiðslufyrirkomulag
Námskeið
220.000 kr.
Þrjár greiðslur fram á haust
Gisting Secret Garden (15 nætur með morgunmat)
80.000 – 150.000 kr/mann (verð ræðst af ýmsum breytum)
Fyrirframgjald en annars greitt við komu
Flug
150.000-250.000 kr. (verð ræðst af því hvað þú velur)
Greitt þegar þér hentar
Sem sagt:
Verð fyrir 38 klst. námskeið, gistingu m/morgunmat og flug gæti verið á bilinu 450-620.000 kr. eftir því hvað valið er. Greiðslur eru dreifðar.
Ákaflega ódýrt er að dvelja á Indlandi og flest sem freistar kostar aðeins brot af íslensku verði.
Sum stéttarfélög niðurgreiddu fyrri námskeið.
Nánari skýringar á verðum HÉR
Veður
Nóvember er góður mánuður en þá hefst þurra árstíðin með dagshita á milli 29-32°C.
Gest- og gleðigjafar
Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina, kennir.
Þóra Bergný Guðmundsdóttir, eigandi Secret Garden er gestum innan handar í Kochi.
Skráning
Skráðu áhuga þinn með bláa hnappnum hér að neðan. Þá ertu komin/n í hóp áhugasamra og færð sendar upplýsingar um staðfestingargjald, greiðslufyrirkomulag, endurgreiðsluskilmála og bréf til stéttarfélags.
Nánari upplýsingar: Björg s. 899 6917 / bjorg(hja)stilvopnid.is

Úr kennslustund haustið 2023
Indlandsævintýrið – námskeiðslýsing (38 klst.)
Við byrjum á félagsörvandi æfingum til að kynnast, byrja að skrifa og skapa saman örggt umhverfi til að vaxa og þroskast í skrifum okkar.
Þá horfum við inn á við í æfingum sem fjalla um ævi okkar og innri mann.
Að því loknu opnum við fyrir öll skilningarvit í leiðangrum um umhverfið; skrifum um það sem við sjáum, heyrum, snertum, skynjum, brögðum og lyktum af auk samskipta okkar við innfædda og viðbragða okkar við öllum þessum upplifunum.
Því næst skoðum við aðferðir sagnaritunar og skrifum sögur sem leiða okkur að frásagnarlíkani Hetjuferðarinnar (The Hero’s Journey). Við leitumst við að nýta okkur það sem við lærðum í fyrri skrifum en bæta afli ímyndunarinnar við.
Í lok námskeiðs fléttum við saman staðreyndum, upplifunum, tilfinningum og ímyndunarafli í vandaðri grein eða færslu um valið efni úr ferðalaginu (ferðaskrif).
Hver fjögurra tíma fundur hefst með innlögn (verkefni lagt fyrir og um það rætt í hópnum), verkefnin leyst (stundum í áföngum) og skrifunum deilt. Þegar þess er þörf er hópnum skipt og unnið í minni hópum.
Textar eru líka lesnir á kvöldvökum og skrifin eru auk þess óhjákvæmilega rædd í dagsins önn.
Sérstaklega er mælt með lestri bókar Arundhati Roy, Guð hins smáa, sem gerist í Kerala.
Jógatímar eru í boði á hótelinu áður en kennsla hefst alla morgna.
Umsagnir
,,Í hópnum skipti hvorki bakgrunnur né aldur máli. Dýrmæt þykja mér þau kynni og margt af því sem ég hef lært af Björgu og hópnum mun ég taka með mér og raða vandlega í verkfærakistu lífsins. Á námskeiðinu hef fengið að kynnast gagnlegum ráðum til að nálgast betur meitlun máls og hugsana. Reynsla og þekking Bjargar á viðfangsefninu er framúrskarandi og fagleg, byggð haldgóðri þekkingu frá henni og öðrum fræðimönnum á þessu sviði.“
Alda Árnadóttir verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgur
,, … og svo líka bara að hlusta á alla hina, að vera í hópi, það er svo magnað. Ég hef haft þessa hugmynd um að rithöfundurinn eigi að vera lokaður einn uppi í turni en í þessu umhverfi meikar það fullkominn sens að vera með öðrum í hópi, að hlusta á það sem hinir segja og bera skrif sín undir aðra.“
Steiney Skúladóttir spunaleikkona og sketsahöfundur
,,Mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Þegar ég segi að ferðin opni nýjar víddir hugsans meina ég að auðvitað er hugurinn þarna, síkvikur, en þú hjálpar mér að leysa úr læðingi krafta sem ég vissi ekki einu sinni að væru þarna.“
Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri
Nokkrar myndir frá námskeiðunum ’23 og ’25


