Ævintýralegar ritbúðir
Showing the single result
Skrifað með öllum skilningarvitum á Indlandi 29. okt.-13. nóv. 2026
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ VERA EINS OG HEIMA HJÁ SÉR AUSTUR Á INDLANDI!
Ferðin er sérstök og því eru hér miklar upplýsingar:
Dagana 29. okt.-13. nóv. 2026 stendur Stílvopnið í þriðja sinn fyrir hæglætisferð til Kochiborgar í Kerala, syðsta fylki Indlands. Hópurinn dvelur hjá Þóru Guðmundsdóttur á Secret Garden hótelinu og rannsakar umhverfið, eigið ímyndarafl og innra líf undir stjórn Bjargar Árnadóttur, ritlistarkennara.
Ferðin er fyrir þau sem langar að kynnast Indlandi með öllum skilningarvitum og uppgötva um leið eigin höfundarödd í heilsusamlegu umhverfinu. Námskeiðið er fyrir byrjendur og lengra komna líkt og jógatími þar sem fólk einbeitir sér að eigin vellíðan og færni án samanburðar við aðra.
Pláss er fyrir 16, unga og aldna, konur, kvár og karla. Í fyrri ferðum skapaði fimmtíu ára aldursbilið skemmtilega fjölbreytt samskipti og skrif.
Hæglætiferð til Kerala er góð hugmynd
Námskeiðslýsing
er neðar í síðunni.
Fyrirkomulag
Námskeiðið (38 klst.) stendur yfir 8 af 15 morgnum á Secret Garden, 4 klst. í senn. Auk þess upphitun áður en lagt er í hann og upplestur á hótelkvöldvökum.
Um miðbik dvalar er nokkurra daga hlé sem nota má til ferðalaga eða frekari skrifa.
Lengja má ævintýrið í báða enda með ferðalögum á eigin vegum eða í félagsskap hinna. Hótelið veitir upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og aðstoð við að komast þangað.
Skipulögð ferð á eigin vegum
Þátttakendur greiða Stílvopninu námskeiðið, Secret Garden gistinguna og flugfélaginu flugið.
Fólk kemur sér sjálft á áfangastað en meðal þeirra sem skráðir eru er mikill áhugi á að verða samferða út.
Miðað við ástand heimsmála virðist ákjósanlegast að fljúga með KLM frá Amsterdam til Góa á Indlandi á og þaðan til Kochi.
Eins og sjá má hér að neðan fylgja því litlar fjárhagslegar skuldbindingar að skrá sig.
Ferðalangar þurfa að hafa eigin ferðatryggingar.
Verð og greiðslufyrirkomulag
Námskeið
220.000 kr.
40.000 kr. óafturkræft staðfestingargjald, tvær greiðslur í viðbót fram á sumar (endurgreiddar fram í miðjan september).
Gisting Secret Garden (15 nætur með morgunmat)
80.000 – 150.000 kr/mann (ræðst af ýmsum breytum)
25.000 kr. fyrirframgjald við skráningu, annars greitt við komu.
Flug
150.000-250.000 kr. (ræðst af vali flugfélags og flugleiða)
Greitt þegar þér hentar.
Sem sagt:
Verð fyrir 38 klst. námskeið, gistingu m/morgunmat og flug er á bilinu 450-620.000 kr. (flugverð án ábyrgðar). Greiðslur eru dreifðar frá skráningu fram á komudag.
Ákaflega ódýrt er að dvelja á Indlandi og flest sem freistar kostar aðeins brot af íslensku verði.
Sum stéttarfélög hafa niðurgreitt fyrri námskeið.
Nánari skýringar á verðum HÉR
Töskuberar
Taka má fleiri með í ferðina. Þótt kannski verði ekki rúm fyrir þá í gistihúsinu er nóg af hótelum í næstu götum.
Veður
Nóvember er góður mánuður en þá hefst þurra árstíðin með dagshita á milli 29-32°C.
Gest- og gleðigjafar
Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina, kennir.
Þóra Bergný Guðmundsdóttir, eigandi Secret Garden, er gestum innan handar í Kochi.
Skráning
Skráðu áhuga þinn hér að neðan.
Þú færð sendar nánari upplýsingar um greiðslu- og endurgreiðslufyrirkomulag, töskubera og niðurgreiðslu stéttarfélags.
Ekki þarf að greiða staðfestingargjald við áhugaskráningu - flettu bara framhjá greiðslusíðunum
