Sköpunarsmiðja: Tólf spora ævintýri 14. til 16. nóvember

56.900 kr.

  • Hvar: Íslenska sjávarklasanum, Grandagarði 16, 101 Reykjavík
  • Hvenær: Helgarnámskeið 14.-16. nóv. (12 klst.) Fös. 18-22, lau. og sun. 10-14.
  • Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistar- og myndlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina.
  • Verð: 56.900 kr. Athugaðu hvort stéttarfélagið styrkir þig.

Stílvopnið vann til alþjóðlegu hvatningarverðlaunanna Global WIIN 2024 

Skráning og greiðslur

Berist staðfesting/reikningur ekki: Skoðið ruslpóstinn eða hafið samband.

Greiðið á reikning Stílvopnsins:0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti.
Ekki þarf að greiða við skráningu en tryggðu þér sætið með greiðslu.

Endurgreiðsluskilmálar

 

Nánari lýsing

Um hvað snýst sköpunarmiðjan?

Að skoða sjálfa/n sig sem hetju í eigin ævintýri opnar augun fyrir þroskaverkefnum lífsins á skýran og áhrifaríkan hátt. Þú áttar þig á hvert þú stefnir og hvers vegna, kynnist þínum eigin hetjulegu eiginleikum og uppgötvar  hvernig þú bregst við áskorunum og hindrunum. Þú sérð samferðafólkið breytast í erkitýpur ævintýrisins, gengur í gegnum ferli fyrirgefningar og sátta, og öðlast gjöf þroskans sem nýtist ekki aðeins þér heldur einnig samfélaginu þínu öllu.

Unnið er með aðferðum listanna, leiddrar hugleiðslu og félagsörvunar sem leggja grunn að innihaldsríkum samtölum þar sem fjör og alvara eiga samleið.

Þú kynnist þremur öflugum sjálfskoðunaraðferðum sem fléttað er saman; hinni ævafornu Hetjuferð (The Hero’s Journey), Tólfsporakerfinu og Leið listamannsins (The Artist’s Way) og færð að sjá hvernig við í sorg og bata  fylgjum sömu þroskaleið og hetjan – frá sársauka til styrks og nýs upphafs.

Þú þarft ekki að þekkja aðferðirnar þrjár fyrirfram  – aðeins mæta með opnum huga!

Kynningarmyndband

Fyrir hverja?

Smiðjuna sækir fólk á öllum aldri sem vill skoða þroskaverkefni lífs síns í nýju ljósi. Sum mæta af einskærri forvitni en önnur gagngert til að horfast í augu við ákveðnar hindranir á þroskabraut sinni.

Athugið að þetta er ekki ritlistarnámskeiðið um Hetjuferðina. Um sama ferðalagið er að ræða en þar eru skrifaðar hetjuferðarsögur, hér er leikið með ólík tjáningarform.

Hero's journey - Wikipedia

Fyrirkomulag námskeiðs

Fös.  14. nóv. kl. 18:00-22:00 : Hugmyndafræði Hetjuferðarinnnar kynnt og hópurinn hristur saman með upphitunaræfingum sem spegla hetjuna og ferðalag hennar. Umræður og æfingar tengdar aðferðunum þremur.

Hetjuferðin: Hetjan er ekki ofurhetja heldur sú sem þrátt fyrir óttann þorir að takast á við breytingar.
Spor 1-3: Við játum okkur sigruð hvað varðar ákveðinn vanda (stóran eða smáan).
Leið listamannsins: Aðferðirnar Morgunsíður og Stefnumót við listamann kynntar.

Lau. 15. nóv.  kl. 10:00-14:00: Hópurinn vinnur skapandi, skemmtileg og krefjandi þroskaverkefni sem leiða til ferlis friðþægingar og sátta.

Hetjuferðin: Hetjan tekst á við þrautir og þroskaverkefni í óþekktu landi ævintýrisins. Umbreyting hetjunnar hefst í ferli friðþægingar og sátta.
Spor 4-6: Við tókumst á við bresti. Spor 7-9: Við bættum fyrir misgjörðir.
Leið listamannsins: Við horfumst í augu við hindranir okkar.

Sun.  16. nóv. kl. 10:00-14:00 

Hópurinn snýr aftur til síns þekkta heims, umbreyttur og með gjöf bata og breytinga í farteskinu.

Hetjuferðin: Í ferli umbreytingar hlýtur hetjan gjöf sem hún fer með aftur til síns þekkta heims, samfélagi sínu öllu til heilla.
Spor 10-12: Við urðum fyrir vakningu og bárum öðrum boðskapinn.
Leið listamannsins: Við finnum frelsi til að skapa.

Námskeiðið kann að virðast ógnvekjandi og vissulega er það krefjandi en þó fyrst og fremst skemmtilegt.

Lesið dýpri námskeiðslýsingu 

Ummæli

„Tólf spora ævintýrið er stórkostlegt ferðalag fullt af fróðleik, hugmyndum og gleði. Það hjálpaði mér meðal annars við að takast á við minn innri hornótta hindrunarmeistara sem allt of lengi hefur fylgt mér um lífið. Ég lærði líka að kortleggja þá hetjulegu eiginleika sem í mér búa og efla þannig sjálfstraust mitt. Björg er einstaklega góður kennari sem kann að láta fólki líða vel. Traust og gleði einkenna þetta ævintýri sem ég mæli heilshugar með.“
Kolbrún Erna Pétursdóttir (2024)

„Námskeiðið Tólf spora ævintýri – sköpunarsmiðja stóð sannarlega undir væntingum og gott betur. Það opnaði fyrir nýjar og spennandi gáttir, gaf mér kjark til að takast á við innri hindranir og þor til að gefa fegurðinni og ævintýrinu í sjálfri mér lausan tauminn.“
Hallfríður Þórarinsdóttir (2023)

„Ótroðnar slóðir eru dýrmætasta gjöfin sem ég hef fengið á námskeiðum hjá Björgu, nýjar leiðir til að hugsa og tjá mig. Ég er sérstaklega spennt fyrir þessu námskeiði því að mér sýnist nálgunin ólík því sem ég hef áður reynt og sameina ýmsa fleti sem vekja áhuga minn.“
Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, félagsráðgjafi (2025)

Ég mæli svo verulega mikið með námskeiðinu með Björgu. Það er frumlegt, skemmtilegt og það skilur sannanlega eftir mikið sem ég tók með mér út í þetta flókna líf.
Linda H. Blöndal (2023)

Nánari upplýsingar: s. 899 6917 / bjorg@stilvopnid.is