Sköpunarsmiðja (Tólf spora ævintýri) 5.–7. mars 2027
58.900 kr.
- Hvar: Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, 104 Reykjavík
- Hvenær: Helgarnámskeið 5.-7. mars (12 klst.) Fös. 17-21, lau. og sun. 10-14.
- Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistar- og myndlistarkennari og MA í menntunarfræðum skapandi greina.
- Verð: 58.900 kr. Flest stéttarfélög niðurgreiða.
Skráning og greiðslur
Berist staðfesting/reikningur ekki: Skoðið ruslpóstinn eða hafið samband.
Greiðið á reikning Stílvopnsins:0133-26-580815 / kt. 580815-1380 eða með greiðslukorti.
Ekki þarf að greiða við skráningu en tryggðu þér sætið með greiðslu.
Um hvað snýst sköpunarmiðjan?
Að sjá sjálfa/n sig sem hetju eigin ævintýris varpar nýju ljósi á þroskaverkefni lífsins. Þú skoðar hvert þú stefnir og hvers vegna, kynnist eigin styrkleikum og sérð skýrar hvernig þú bregst við hindrunum og áskorunum. Samferðafólkið birtist í hlutverkum ævintýrisins og hjálpar þér að skoða samskipti þín við annað fólk frá nýju sjónarhorni.
Í sköpunarsmiðjunni er unnið með ritun, myndsköpun og leikræna tjáningu, leidda íhugun og félagsörvun. Aðferðirnar opna á innihaldsrík samtöl þar sem alvara mætir kæti. Ferli fyrirgefningar og sátta er hluti ferðarinnar og getur opnað leið að nýjum skilningi – á sjálfri/sjálfum þér, öðru fólki og eigin lífssögu.
Í smiðjunni eru þrjár þekktar sjálfskoðunaraðferðir fléttaðar saman: ævaforna Hetjuferðin (The Hero’s Journey), Tólfsporakerfið og Leið listamannsins (The Artist’s Way). Úr verður tólf spora skapandi hetjuferð þar sem við skoðum hvernig sorg, bati og breytingar geta fetað sömu þroskaleið og hetjan – frá sársauka til styrks og nýs upphafs.
Þú þarft ekki að þekkja neina þessara aðferða fyrirfram – aðeins að mæta með opnum huga. Og nei, Sporin tólf eru alls ekki bara fyrir alkóhólista!
Fyrir hverja?
Smiðjuna sækir fólk á öllum aldri sem vill sjá þroskaverkefni lífs síns í nýju ljósi. Sum mæta af einskærri forvitni en önnur gagngert til að horfast í augu við ákveðnar hindranir á þroskabraut sinni.
Athugið að þetta er ekki ritlistarnámskeiðið um Hetjuferðina. Um sama ferðalagið er að ræða en þar eru skrifaðar hetjuferðarsögur, hér er leikið með ólík tjáningarform.
Fyrirkomulag námskeiðs
Fös. 5. mars kl. 17:00-21:00 : Hugmyndafræði Hetjuferðarinnnar kynnt og hópurinn hristur saman með upphitunaræfingum sem spegla hetjuna og ferðalag hennar. Umræður og æfingar tengdar aðferðunum þremur.
Hetjuferðin: Hetjan er ekki ofurhetja heldur sú sem þrátt fyrir óttann þorir að takast á við breytingar.
Spor 1-3: Við játum okkur sigruð hvað varðar ákveðinn vanda (stóran eða smáan).
Leið listamannsins: Aðferðirnar Morgunsíður og Stefnumót við listamann kynntar.
Lau. 6. mars kl. 10:00-14:00: Hópurinn vinnur skapandi, skemmtileg og krefjandi þroskaverkefni sem leiða til ferlis friðþægingar og sátta.
Hetjuferðin: Hetjan tekst á við þrautir og þroskaverkefni í óþekktu landi ævintýrisins. Umbreyting hetjunnar hefst í ferli friðþægingar og sátta.
Spor 4-6: Við tókumst á við bresti. Spor 7-9: Við bættum fyrir misgjörðir.
Leið listamannsins: Við horfumst í augu við hindranir okkar.
Sun. 7. mars kl. 10:00-14:00
Hópurinn snýr aftur til síns þekkta heims, umbreyttur og með gjöf bata og breytinga í farteskinu.
Hetjuferðin: Í ferli umbreytingar hlýtur hetjan gjöf sem hún fer með aftur til síns þekkta heims, samfélagi sínu öllu til heilla.
Spor 10-12: Við urðum fyrir vakningu og bárum öðrum boðskapinn.
Leið listamannsins: Við finnum frelsi til að skapa.
Þótt námskeiðið kunni að virðast ógnvekjandi er það fyrst og fremst skemmtilegt!
Lesið dýpri námskeiðslýsingu
Ummæli
„Tólf spora ævintýrið er stórkostlegt ferðalag fullt af fróðleik, hugmyndum og gleði. Það hjálpaði mér meðal annars við að takast á við minn innri hornótta hindrunarmeistara sem allt of lengi hefur fylgt mér um lífið. Ég lærði líka að kortleggja þá hetjulegu eiginleika sem í mér búa og efla þannig sjálfstraust mitt. Björg er einstaklega góður kennari sem kann að láta fólki líða vel. Traust og gleði einkenna þetta ævintýri sem ég mæli heilshugar með.“
Kolbrún Erna Pétursdóttir (2024)
„Námskeiðið Tólf spora ævintýri – sköpunarsmiðja stóð sannarlega undir væntingum og gott betur. Það opnaði fyrir nýjar og spennandi gáttir, gaf mér kjark til að takast á við innri hindranir og þor til að gefa fegurðinni og ævintýrinu í sjálfri mér lausan tauminn.“
Hallfríður Þórarinsdóttir (2023)
„Ótroðnar slóðir eru dýrmætasta gjöfin sem ég hef fengið á námskeiðum hjá Björgu, nýjar leiðir til að hugsa og tjá mig. Ég er sérstaklega spennt fyrir þessu námskeiði því að mér sýnist nálgunin ólík því sem ég hef áður reynt og sameina ýmsa fleti sem vekja áhuga minn.“
Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, félagsráðgjafi (2025)
Linda H. Blöndal (2023)
Nánari upplýsingar: s. 899 6917 / bjorg@stilvopnid.is
Tengdar vörur
Skapandi skrif 25.–27. sept. Nokkur sæti laus
- Hvar: Íslenski sjávarklasinn, Grandagarði 16, 101 Reykjavík. Aðgengi.
- Hvenær: Helgarnámskeið 25. til 27. september (12 klst.).
- Kennari: Björg Árnadóttir, ritlistarkennari, rithöfundur og MA í menntunarfræðum skapandi greina.
- Verð: 58.900. Flest stéttarfélög niðurgreiða.

